Svona hefst leiðari Fréttablaðsins í dag en hann ber fyrirsögnina „Nauðsynlegt afl“ og er ritaður af Kolbrúnu Bergþórsdóttur.
Hún víkur því næst að leit sumra að veikleika oddvita flokkanna sem sé síðan velt miskunnarlaust upp úr þeim og ef ekkert finnist sé enginn vandi að taka sér skáldaleyfi. Þessu hafi Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, fengið að kenna á sem og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann sé ekki í framboði í kosningunum á morgun „þótt stundum mætti halda það, svo oft er nafn hans æpt af ofsa,“ segir Kolbrún.
Hún segist þekkja fólk sem komist í gríðarlega geðshræringu í hvert sinn sem talað sé um Sjálfstæðisflokkinn af virðingu. „Þetta fólk líður nánast andlegar kvalir vegna þess að flokkurinn er í ríkisstjórn og má ekki til þess hugsa að hann nái völdum í borginni. Samt er Hildur Björnsdóttir góður leiðtogi, frjálslynd, dugmikil og hefur brennandi áhuga á borgarmálum. Hún yrði ágætur borgarstjóri, þótt reyndar séu ekki ýkja miklar líkur á því að svo verði,“ segir hún.
Hún bendir síðan á að skoðanakannanir séu ekki kosningaúrslit og því hafi verið athyglisvert að sjá hvernig fjölmiðlar slengdu því fram sem stórfrétt og leituðu til álitsgjafa eftir að Sjálfstæðisflokkurinn mældist með 16% fylgi í einni könnun, sem flest bendi til að hafi ekki verið mjög marktæk. Könnunin sem hún vísar til var gerð af Prósent fyrir Fréttablaðið og var birt fyrr í vikunni.
„Þetta þótti fín frétt í tíðindaleysi, en það var líka margt ofstækisfullt fólk sem sá þarna draum sinn um fall Sjálfstæðisflokksins rætast. Aðrir vona að ekki fari mjög illa fyrir Sjálfstæðisflokknum. Hann er nauðsynlegt afl í íslenskri pólitík. Þar er staðið vörð um einstaklingsfrelsið og barist gegn hinum þrúgandi pólitíska rétttrúnaði sem sligar samfélagið. Þetta eiga menn að virða, hvort sem þeir kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða ekki,“ segir hún síðan að lokum.