fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Eyjan

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins nýr oddviti Miðflokksins í Kópavogi

Erla Hlynsdóttir
Miðvikudaginn 6. apríl 2022 11:42

Karen Elísabet Halldórsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýr oddviti Miðflokksins og óháðra í Kópavogi er Karen Elísabet Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi. Karen sóttist eftir oddvitasætinu hjá Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi í prófkjöri sem haldið var fyrr á árinu en hafði ekki erindi sem erfiði. Þá var hún kærð af trúnaðarmanni innan Sjálfstæðisflokksins til Persónuverndar vegna dreifingar á gögnum um nefndan trúnaðarmann í prófkjörsslagnum þar.

Karen hefur verið bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn síðastliðin átta ár, og varabæjarfulltrúi í fjögur ár.

Karen hefur mikla reynslu þegar kemur að sveitarstjórnarmálum og hefur m.a. verið formaður velferðarráðs, formaður lista- og menningarráðs, formaður öldungaráðs setið í stjórn Strætó og í stjórn jöfnunarsjóðs Sambands íslenskra sveitarfélaga. Karen er með BA í sálfræði og MA í mannauðsstjórnun og starfar sem skrifstofustjóri

Karen á tvær dætur Júlíu 21. árs laganema og Elísu 16 ára framhaldsskólanema.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þurfti að stilla til friðar eftir háðsglósur á Alþingi þar sem þingmaður móðgaðist og meirihlutinn flissaði – „Bíddu, hvar hefurðu verið?“

Þurfti að stilla til friðar eftir háðsglósur á Alþingi þar sem þingmaður móðgaðist og meirihlutinn flissaði – „Bíddu, hvar hefurðu verið?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að flensa afturendann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að flensa afturendann
Eyjan
Fyrir 1 viku

Diljá Mist Einarsdóttir: Trump hefur sértrúarsöfnuð í kringum sig – Ísland hefur sérstöðu

Diljá Mist Einarsdóttir: Trump hefur sértrúarsöfnuð í kringum sig – Ísland hefur sérstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Heimur í höndum skemanns

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Heimur í höndum skemanns
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna tekur sér leyfi á þingi til að elta langþráðan draum

Áslaug Arna tekur sér leyfi á þingi til að elta langþráðan draum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Steinunn Ólína skrifar: Óttaslegnir menn

Steinunn Ólína skrifar: Óttaslegnir menn