fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Gísli Rafn: „Þetta er óþarfa ótti“

Máni Snær Þorláksson
Mánudaginn 6. september 2021 18:34

Gísli Rafn Ólafsson - Mynd/Píratar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Í samtölum við fólk á mínum aldri heyri ég oft nefnt að það sé hrætt við að kjósa Pírata af því að þeir vilji lögleiða vímuefni. Þetta er óþarfa ótti sem að eflaust er hægt að skrifa á það að Píratar nota ýmis nýyrði, afglæpavæðing og skaðaminnkun, sem eðlilegt er að þekkja ekki til hlítar.

Svona hefst pistill sem Gísli Rafn Ólafsson, frambjóðandi Pírata í Suðvesturkjördæmi, skrifar en pistilinn birtist á Vísi í dag. Í pistlinum fer Gísli yfir það hvers vegna Píratar vilja afglæpavæða vímuefni.

„Vímuefni hafa þekkst í árþúsundir og hafa orsakað ýmis félagsleg og samfélagsleg vandamál. Árið 1971 lýsti þáverandi forseti Bandaríkjanna vímuefnum sem helsta óvini Bandaríkjanna og hóf það sem fljótlega fékk nafnið „Dópstríðið“ (e: war on drugs). Yfirlýsing hans gerði stjórnvöldum í Bandaríkjunum kleift að nota löggæslu og herafla til þess að berjast gegn öllum þeim vímuefnum sem flæddu þá inn í landið. Talið er að í Bandaríkjunum einum hafi næstum 130 billjónum íslenskra króna (e. trillion) verið varið í þetta stríð.“

„Við köllum áfengissjúklinga ekki áfengisglæpamenn“

Gísli bendir á að Ísland og önnur lönd hafi fylgt þessari stefnu og sett á ströng lög þar sem öll viðskipti og eignarhald á vímuefnum væru skilgreind sem lögbrot. „Þó svo að við séum öll sammála um að viðskipti og dreifing á vímuefnum sé skaðleg og slæm, þá fer því miður mesta púðrið hjá lögreglu, dómskerfinu og fangelsum í að rannsaka, lögsækja og refsa fólki sem einfaldlega fast í viðjum fíknar sinnar,“ segir hann í pistlinum.

„Það er nákvæmlega þar sem hugtakið skaðaminnkun kemur inn. Við þurfum að líta á fólk sem er háð vímuefnum sem sjúklinga, en ekki sem glæpamenn. Við erum þegar að gera þetta með fólk sem er háð vímuefni sem þegar er löglegt, áfengi. Við köllum áfengissjúklinga ekki áfengisglæpamenn og við sem samfélag höfum byggt upp stuðningsnet og þjónustu fyrir þau sem vilja losna undan verstu einkennum sjúkdómsins.“

„Við viljum hætta að líta á þau sem glæpamenn“

Gísli segir að Píratar vilji gera það sama með önnur vímuefni. „Við viljum líta á þetta fólk sem sjúklinga sem þurfa þjónustu og stuðning til þess að losna úr klóm vímuefna. Við viljum hætta að refsa því fyrir að vera með í höndunum litla skammta af vímuefnum sem augljóslega eru til einkaneyslu en ekki til dreifingar eða sölu. Við viljum gera það auðveldara fyrir þetta fólk að losna úr viðjum vímuefnanna, í stað þess að vera hrætt við að vera handtekin fyrir lögbrot,“ segir hann.

Þá segir Gísli að Píratar vilji hætta að fylla fangelsi og teppa upp dómskerfið. Han segir að um sé að ræða mál þar sem verið er að refsa fólki sem einungis er fast í viðjum sjúkdóms, sem er aðeins að valda sjálfu sér skaða. „Við viljum frekar nýta lögreglu, dómskerfi og fangelsi til þess að rannsaka, dæma og refsa fólki sem sleppur af því að ekki er nægur tími til þess að rannsaka mun alvarlegri mál,“ segir hann.

„Við sýnum samúð með því fólki sem ánetjast vímuefnum. Við viljum hjálpa því að draga úr þeim skaða sem vímuefnin koma þeim í. Við viljum hætta að líta á þau sem glæpamenn og horfa á þau sem fólk sem þarf aðstoð, ekki refsingu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn