fbpx
Fimmtudagur 25.desember 2025
Eyjan

Mogginn telur að ríkisstjórnin gæti haldið – Framsókn og Sjálfstæðisflokkur á uppleið

Eyjan
Föstudaginn 24. september 2021 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt nýrri könnun MMR fyrir Morgunblaðið um fylgi stjórnmálaflokkanna er ríkisstjórnin fallin með 31 þingmann samtals af 63. Litlar fylgisbreytingar þurfa þó að eiga sér stað til að ríkisstjórnin haldi velli með 32 eða 33 þingmenn. Könnunin var gerð dagana 22.-23. september. Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur eru á uppleið samkvæmt könnuninni en VG tapar fylgi.

Fylgi í þremur síðustu skoðanakönnunum MMR fyrir Morgunblaðið, frá 15. til 23. september, skiptist með eftirfarandi hætti:

Sjálfstæðisflokkur 22,9% og 14 þingmenn

Framsókn 16,4%  og 11 þingmenn

Miðflokkur 5,8% og 3 þingmenn

Viðreisn 12% og 7 þingmenn

Flokkur fólksins 6,2% og 4 þingmenn

Samfylkingin 11,5% og 8 þingmenn

VG 9,7% og 6 þingmenn

Píratar 9,9% og 6 þingmenn

Sósíalistar 5,1% og 4 þingmenn

Athygli vekur að Sósíalistaflokkurinn er ekki öruggur inn á þing eins og hann hefur virst í öðrum könnunum undanfarið. Hann er þó inni samkvæmt þessum tölum. Morgunblaðið les þannig í þessar kannanir að ríkisstjórni gæti haldið því litlar breytingar þurfi að eiga sér stað á fylginu til að hún komist í meirihluta. Blaðið dregur þróunina undanfarið saman með eftirfarandi orðum:

„Ef litið er á fylg­is­hreyf­ing­ar í þess­ari viku er greini­legt að Fram­sókn, Viðreisn og Sjálf­stæðis­flokk­ur eru að sækja í sig veðrið á loka­sprett­in­um með frek­ar af­ger­andi hætti, en herslumun­inn vant­ar til þess að stjórn­ar­flokk­arn­ir haldi velli. Þar mun­ar mest um að vinstri­flokk­arn­ir hafa tekið að dala á ný og er fylgi þeirra frek­ar að fletj­ast út. Sam­fylk­ing­in hef­ur þannig tapað mest­allri fylgisaukn­ingu liðinna vikna. Hlut­falls­lega hef­ur Sósí­al­ista­flokk­ur­inn þó tapað mestu fylgi frá því í liðinni viku, þegar hann var með hátt í 9% en er nú við 5% fylgi.

Fylgi Flokks fólks­ins hef­ur hins veg­ar styrkst tals­vert og sömu­leiðis virðist Miðflokk­ur­inn vera að treysta sig, þó hann sé eng­inn há­stökkvari.“

Sjá nánar á vef Morgunblaðsins

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Til hamingju – Eins árs afmæli og verkin tala

Orðið á götunni: Til hamingju – Eins árs afmæli og verkin tala
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Nína Richter skrifar: Fjöldaframleiddar jólaklisjur

Nína Richter skrifar: Fjöldaframleiddar jólaklisjur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Stjórnmálamaður ársins á Íslandi og atvinnurekandi ársins 2025

Orðið á götunni: Stjórnmálamaður ársins á Íslandi og atvinnurekandi ársins 2025
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hjálmar Sveinsson býður sig ekki fram til borgarstjórnar

Hjálmar Sveinsson býður sig ekki fram til borgarstjórnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Séra Örn Bárður Jónsson: Vissi lítið um trú – fékk opinberun og venti kvæði sínu í kross

Séra Örn Bárður Jónsson: Vissi lítið um trú – fékk opinberun og venti kvæði sínu í kross
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svandís hættir sem formaður VG

Svandís hættir sem formaður VG