fbpx
Laugardagur 27.september 2025
Eyjan

Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi en Píratar bæta við sig

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 23. september 2021 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 20,1% og hefur flokkurinn tapað rúmlega einu prósentustigi síðan í síðustu viku. Fylgi Pírata mælist nú 13,1% miðað við 11,5% í síðustu viku og hefur flokkurinn því bætt við sig einu og hálfu prósentustigi.

Þetta eru niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar sem Prósent gerði fyrir Fréttablaðið. Fylgi Samfylkingarinnar mælist 14,7% og er flokkurinn því næststærsti flokkurinn samkvæmt þessu. Fylgi Framsóknarflokksins mælist 12,2% og fylgi VG 10,7%.

Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna mælist 43% og er ríkisstjórnin því fallin.

Fylgi Viðreisnar mælist 9,3%, Sósíalistar mælast með 6,9%, Miðflokkurinn með 6,6% og Flokkur fólksins með 5,2%. Fylgi Frjálslynda lýðræðisflokksins mælist 1,1%.

Miðað við niðurstöður könnunarinnar fá níu framboð þingmenn kjörna. Ef það gengur eftir verður um met að ræða í sögu þingsins.

Könnunin var gerð 17. til 21. september og var úrtakið 2.500 manns og svöruðu 1.244 eða tæplega 50%.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Veisla hjá Viðreisn

Thomas Möller skrifar: Veisla hjá Viðreisn
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guy Verhofstadt: Evrópa þarf að þjappa sér betur saman og byggja upp hernaðarmátt í gerbreyttri heimsskipan

Guy Verhofstadt: Evrópa þarf að þjappa sér betur saman og byggja upp hernaðarmátt í gerbreyttri heimsskipan
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Hálf öld frá stofnun Dagblaðsins

Björn Jón skrifar: Hálf öld frá stofnun Dagblaðsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Þetta eru veiðigjöld bankakerfisins“

„Þetta eru veiðigjöld bankakerfisins“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur slær á létta strengi eftir atvik í gær – „Ef ég var einhvern tímann að íhuga að kippa lýðveldinu úr sambandi“

Hildur slær á létta strengi eftir atvik í gær – „Ef ég var einhvern tímann að íhuga að kippa lýðveldinu úr sambandi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Menningarstríðið er völundarhús

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Menningarstríðið er völundarhús