fbpx
Sunnudagur 04.janúar 2026
Eyjan

Segir Katrínu vera að eyðileggja landið og íslamsvæða þjóðina – Spyr hvort engar vitsmunakröfur séu gerðar til Alþingismanna

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 21. september 2021 06:59

Katrín Jakobsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru kosningar í nánd og mörgum liggur eitt og annað á hjarta vegna þeirra. Meðal þeirra er Stefanía Jónasdóttir, íbúi á Sauðárkróki, sem skrifar grein í Morgunblaðið í dag undir fyrirsögninni „Ísland farsælda frón – ekki?“. Óhætt er að segja að hún fari mikinn og höggvi í marga stjórnmálaflokka.

Fyrst skrifar hún um sjávarútveginn og Pírata, Sósíalista, Viðreisn, Samfylkinguna og ESB og segir að um ríkisómaga sé að ræða. Hún spyr hvort þessir flokkar hafi lagt milljarða í kaup á fiskiskipaflotanum, uppbyggingu frystihúsa, netagerða og annar starfa tengdum sjávarútvegi. Þessu svarar hún síðan sjálf með nei og segir að samt sem áður séu þessir flokkar tilbúnir til að eyðileggja þetta allt því þeir telji sig geta gert betur en svo sé ekki. „Einhver lélegustu stjórnmál sem til eru viljið þið stunda, en það er að taka frá einum til handa öðrum. Það á enginn fiskinn í sjónum, en þeir sem hafa sótt hann hafa byggt hér upp. Svo komið þið með glampandi glyrnurnar af öfund af því að þeir græða líka, en auðvitað má það ekki á Íslandi. Svo að ykkur líði betur, farið þá og sækið sjálf þessa auðlind ykkar,” segir hún.

Því næst víkur hún að Lánasjóði námsmanna og sparar ekki lýsingarnar: „Hver hefur lagt fé í Lánasjóð námsmanna svo að þið gætuð menntað ykkur og komið síðan sem blaðrandi sérfræðingar á öllum sviðum lífsins nema lífinu sjálfu? Það er allt í óreiðu hjá okkur vegna misviturra blaðrandi sérfræðinga og auðvitað þarf að taka af vinnandi höndum til að viðhalda blaðrinu. Það er eins og þið haldið að peningar verði til í skjalatösku á leið í banka. Þið, sem þykist hafa vit á sjávarútvegi og viljið uppboð á kvóta, hvernig ætlið þið að banna EES og ESB að vera með? Ég veit að þið hættið ekki fyrr en þið hafið eyðilagt allt, því til þess menntuðuð þið ykkur – og svo að það sé vitað og sagt þá hafið þið ekkert meira vit eða getu en verkafólkið okkar. Það fólk veit og skilur meira en sérfræðingarnir um lífið sjálft,” segir hún.

Hún segir síðan að stóru málin séu ekki rædd, það eru að hennar mati sala á landi til útlendinga, leyfi til gullleitar, orkumál, útlendingamál, vindmyllur, glæpaklíkur, innviðir, öryrkjar, langveik börn og fleira.

Því næst ávarpar hún Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, og segir: „Þér gengur vel að eyðileggja land þitt og þjóð og þín verður minnst fyrir að íslamsvæða þjóð þína og land. Börn framtíðar munu þurfa að kljást við íslam. Fólkið sem þú sækir til búsetu hér veit að það eru villidýr í skóginum öfugt við það sem íslenskum börnum er innrætt; að allir í skóginum séu vinir. Þú og Guðlaugur Þór dælið fé úr ríkissjóði, þið misnotið 300 þúsund manna þjóð til að lappa upp á milljóna manna þjóðir í Afganistan, Sýrlandi, Líbanon, Jemen, Túnis, Palestínu, svo ekki sé talað um Afríku, utan þess sem fer til Rauða krossins og til þróunarsamvinnu. Af hverju gerið þið okkur hér ábyrg fyrir hörmungum heimsins?”

Hún spyr síðan hvort engin girðing sé til varnar Alþingi hvað vitsmuni varðar? Þar á hún væntanlega við gáfnafar Alþingismanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Vilhjálmur Egilsson: Kannski er þetta tímabil í sögu Bandaríkjanna bara liðið

Vilhjálmur Egilsson: Kannski er þetta tímabil í sögu Bandaríkjanna bara liðið
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðrún Karls Helgudóttir: Þegar á reynir leitar fólk til Kirkjunnar

Guðrún Karls Helgudóttir: Þegar á reynir leitar fólk til Kirkjunnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Guðrún Karls Helgudóttir: Ótrúlegt hvað stórfelldar breytingar á Þjóðkirkjunni frá 2019 hafa farið lágt

Guðrún Karls Helgudóttir: Ótrúlegt hvað stórfelldar breytingar á Þjóðkirkjunni frá 2019 hafa farið lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Er ekki allt í jólalagi?

Nína Richter skrifar: Er ekki allt í jólalagi?
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Björn Jón skrifar: Framtíðin veltur á lestri

Björn Jón skrifar: Framtíðin veltur á lestri
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Gylfi Magnússon: Eini raunhæfi kosturinn er innganga í ESB og upptaka evru

Gylfi Magnússon: Eini raunhæfi kosturinn er innganga í ESB og upptaka evru
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Gylfi Magnússon: Bandaríkjamenn eru sjálfir að borga tolla Trumps

Gylfi Magnússon: Bandaríkjamenn eru sjálfir að borga tolla Trumps
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Orðið á götunni: Til hamingju – Eins árs afmæli og verkin tala

Orðið á götunni: Til hamingju – Eins árs afmæli og verkin tala