fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Eyjan

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins kallar Gísla pjakk og prinsessu – „Nú ert þú bara prinsessa RÚV“

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 28. apríl 2021 10:40

Mynd/Samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þú hefur verið óvenju drjúgur með þig þessa dagana, pjakkurinn þinn, og er þá mikið sagt.“

Þetta segir Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um Gísla Martein Baldursson, þáttastjórnanda og fyrrum borgarfulltrúa, í pistli sem birtist á Vísi í dag. Marta sparar ekki stóru orðin í pistlinum og hraunar yfir Gísla, kallar hann prinsessu og segist taka hann í bakaríið.

„Þriðjudaginn 20. apríl sl. réðist þú á borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á Facebooksíðu þinni með ósannindum og vísbendingum um að þú sért farinn að tapa minni meira en góðu hófi gegni. Ég er nánast hætt að reyna að siða þig til þó þú sért gamall félagi sem mér er ekki alveg sama um. Ég ætlaði því að leiða hjá mér skvaldrið í þér, enda hefur því verið prýðilega svarað af tveimur afbragðs konum á lista okkar sjálfstæðismanna, Þórdísi Pálsdóttur og Ragnhildi Öldu Vilhjálmsdóttur. Ég hélt að þær hefðu haft af mér ómakið.“

Marta segir að sér hafi verið illa brugðið þegar hún heyrði í Gísla í þættinum Bakaríið á Bylgjunni þann 24. apríl síðastliðinn. „Ég veit ekki hvort er hvimleiðara, stykkin þín á Facebook frá 20. apríl, eða sá Emil í Kattholti sem var mættur í Bakaríið til að afbaka strákapörin. Það kann ekki góðri lukku að stýra, að ljúga upp á gamla pólitíska samstarfsfélaga og grípa síðan aftur til ósanninda þegar þú ert staðinn að verki,“ segir hún.

„En svona er nú háttalagið. Því fer kannski best á því að ég verði þriðja konan á lista Sjálfstæðisflokksins sem tekur þig í bakaríið á fáeinum dögum.“

„Allt eru þetta rakalaus og vísvitandi ósannindi“

Í pistlinum sakar Marta Gísla um ósannindi. „Á Facebooksíðunni heldur þú því fram að við sjálfstæðismenn séum á móti því að ökuhraði bíla inn í hverfum borgarinnar verði lækkaður. Þetta eru ósannindi. Þar heldur þú því einnig fram að við berjumst fyrir auknum ökuhraða inn í hverfum borgarinnar. Þetta eru einnig ósannindi,“ segir hún og telur svo upp það þriðja sem hún segir að sé ósannindi.

„Í þriðja lagi heldur þú því fram að við séum á móti þeirri þróun að fólk sitji úti við á bekkjum í boði Reykjavíkurborgar, drekki þar bjór og kaffi í boði Kaffi Vest, borði þar í boði Brauð og Co og Hagavagnsins, spjalli saman, umferðaröryggi aukist, hávaða- og umferðarmengun minnki og að mannlíf verði margfalt meira. Þú segir að það verði að teljast með ólíkindum að stjórnmálaflokkur ákveði að vera á móti slíkri jákvæðri þróun. Þetta eru líka ósannindi.“

Hún segir að Gísli viti það vel að um ósannindi sé að ræða, þar sem hann hafi eitt sinn gegnt sama hlutverki og hún. „Þú varst í okkar röðum, þegar það hentaði þínum hagsmunum. Allt eru þetta rakalaus og vísvitandi ósannindi, haldið fram í flokkáróðursskyni, ekki óviljandi rangfærslur.“

„Beddu gvöð að gleypa þig barn!“

Marta segir að allir geti samgleðst yfir mannlífinu fagra sem Gísli talar fyrir. „Meira að segja við sjálfstæðismenn höfum ekkert út á það að setja nema eftirfarandi: Dagur B. Eggertsson ætti ekki að veita þínum veitingarekstri bekki og borð í eigu borgarinnar og veita í það einni og hálfri milljón króna svo Kaffi Vest geti boðið upp á bjór undir berum himni. Slíka ívilnun fá ekki aðrir veitingastaðir,“ segir Marta í pistlinum.

„Loks bítur þú hausinn af skömminni þegar þú afneitar því að gerð hafi verið umferðartalning sem bendir til að gegnumumferð um Mela- og Hagahverfið hafi aukist á undanförnum árum. Þrír borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fóru þess á leit að slík könnun yrði gerð. Farið var fram á slíka könnun því það er alltaf hætta á að þrenging á tengibrautum leiði til aukinnar gegnumumferðar um nærliggjandi íbúðahverfi. Könnunin var gerð og hún leiddi í ljós þennan grun.“

Marta segist sjálf hafa setið á skipulagsráðsfundinum þegar niðurstaða könnunarinnar var lögð fram og kynnt. Hún segir að Gísli hafi sjálfur verið í hóp þeirra sjálfstæðismanna sem báðu um könnunina. „Þeir borgarfulltrúar sjálfstæðisflokksins sem hins vegar báðu um könnunina voru Júlíus Vífill Ingvarsson, Hildur Sverrisdóttir og Gísli Marteinn Baldursson. Ég segi því nú bara eins og gamlar konur á Austfjörðum: „Beddu gvöð að gleypa þig barn!“,“ segir Marta.

„Þess vegna er þér meinilla við þessa grasrót“

Marta talar þá aftur um Bakaríið á Bylgjunni. „Í Bakaríinu gættir þú þess vandlega að vera ekkert að blanda Sjálfstæðisflokknum um of í málið, enda vilt þú líklega ekki fá fleiri skilaboð af þeim bænum. Nú snerir þú óánægjunni upp á alla stjórnmálaflokka: Allir flokkar séu svo vondir að þú vitir bara ekki hvern þeirra þú átt að kjósa næst,“ segir hún.

„Samt segirðu að til sé gott fólk í öllum flokkum sem vilji sjá til þess að gali gaukar og spretti laukar um allan bæ. Hins vegar séu líka í þessum flokkum vont fólk í grasrótum (kannski grasrætið fólk?) sem vilja að allir í einum flokki séu vondir við alla í öðrum flokkum. Sér er nú hver spekin – eða hreinskilnin!“

Hún segir að engum öðrum en Gísla hefði dottið í hug að fólk í grasrót stjórnmálaflokka sé vont. „Það sem verra er, Gísli Marteinn, þú ert ekki einu sinni sjálfur þessarar skoðunar. Þú bara spinnur þennan þvætting af því þú heldur að það komi þér vel í fjölmiðli. Þér er í raun bara illa við eina grasrót í einum flokki. Svo hefur ætíð verið og ég skal rifja það upp fyrir þér: Þér er meinilla við grasrót sjálfstæðismanna í Reykjavík. En hvers vegna?“

Marta svarar þá spurningu sinni. „Jú. Þú varst ein af prinsessum Sjálfstæðisflokksins og RÚV. En nú ert þú bara prinsessa RÚV. Þú varst frjálshyggjumaður, komst þér í mjúkinn hjá valdamiklum sem og velstæðum sjálfstæðismönnum og vildir verða borgarstjóri fyrir Sjálfstæðisflokkinn, keyptir ómæld gallon af bjór og tonn af pitsum sem þú útdeildir eins og rómverskur keisari – en, en, en þú tapaðir samt í fjölmennasta prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, fyrr og síðar, fyrir grasrót flokksins í Reykjavík, árið 2006. Þess vegna er þér meinilla við þessa grasrót.“

„Láttu það aldrei hvarfla að þér að sjálfstæðismenn í Reykjavík leggi upp laupana“

Að lokum segir Marta að Gísli sé ekki eina prinsessan. „Það verða alltaf til prinsessur í öllum flokkum sem telja sig yfir aðra hafnar, sem sína venjulegu fólki vandlætingu og meta manngildi eftir merkjavörum. Slíkum prinsessum verður auðvitað, rétt eins og þér, alltaf í nöp við grasrót í stjórnmálaflokkum sem þvælist fyrir skjótfengnum, keyptum frama þeirra,“ segir hún.

„Þrátt fyrir breiða brosið þitt, prúðmannlega framkomu sem dáleiðir heilu elliheimilin, brennandi hugsjónir um betra mannlíf og allan þinn vísdóm og visku sem þú öðlaðist í námi í Edinborg á meðan þú varst á sama tíma borgarfulltrúi, – þrátt fyrir alla þessa mannkosti og þennan mannlífskærleika, er enn þá eitthvað sem klæjar undan og veldur þér pirringi frá 2006. Slepptu því bara lausu, Gísli, og farðu alla leið.“

Hún botnar pistilinn með baráttuorðum. „Láttu það aldrei hvarfla að þér að sjálfstæðismenn í Reykjavík leggi upp laupana,“ segir hún. „Kynslóðir munu koma og fara, en hugsjón Sjálfstæðisflokksins um frjálsræði og framfarir, öllum til handa, mun ekki líða undir lok. Ekki einu sinni fyrir tilstilli prinsessunnar á bauninni, hvort sem það ert nú þú eða aðrar álíka.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt