Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, kaus fyrir hádegi í Lækjarskóla í Hafnarfirði og hefur síðan haft nóg fyrir stafni. Hún segist ekki hafa neinar ákveðnar hefðir á kjördag.
„Ég er ekki beint með ákveðnar hefðir á kjördegi. Ég vakna upp úr klukkan átta og fæ mér góðan morgunmat. Ég er snyrtileg á kjördag, mér finnst það skipta máli. Þetta er hátíðisdagur og dagur sem við sem lýðræðisþjóð eigum að fagna. Ég kýs iðulega á milli tíu og ellefu, oftast í kringum hálfellefu. Það er kannski svona það eina sem ég held verulega í á þessum skemmtilegasta degi kosningabaráttunnar,“ segir hún.
Dagurinn í dag er vel skipulagður hjá henni. „Ég ætla að fara suður með sjó og heimsækja fólkið mitt í Keflavík, frambjóðendur Viðreisnar þar. Svo ætla ég að fara á kosningaskrifstofuna hér á höfuðborgarsvæðinu og inn á milli fá mér gott kaffi og vínarbrauð – og auðvitað hala inn atkvæðum. Það er ekki þannig að þetta sé búið á kjördag, þessu lýkur ekki fyrr en klukkan tíu um kvöldið, og atkvæðin þurfa að skila sér í hús. Við þurfum að minna kjósendur á að við í Viðreisn ætlum að gefa framtíðinni tækifæri og gera líf fólks auðveldara og betra. Svo fögnum við saman á kosningavöku okkar á Skor í JL-húsinu á laugardagskvöld,“ segir hún.