fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Eyjan

Bjarkey sagði skilaboðin til VG skýr – Fjarlægði færsluna eftir samtal við Katrínu

Eyjan
Þriðjudaginn 21. september 2021 14:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri Grænna, birti í gær færslu á Facebook þar sem hún deildi niðurstöðum nýs Þjóðarpúls Gallups þar sem fylgi Vinstri Grænan fór úr 17% yfir í 10% og sagði að skilaboðin til Vinstri Grænna væru skýr – þjóðin vildi flokkinn ekki í ríkisstjórn.

„Skila­boðin eru skýr, fylgið fer úr 17% í 10% og því ljóst að vilji er til þess að aðrir taki við kefl­inu.“ 

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sagði í samtali við RÚV að færsla Bjarkeyjar lýsti ekki afstöðu Vinstri Grænna, þeir væru tilbúnir að mynda ríkisstjórn sama hvert fylgið væri.

„Í fyrsta lagi er það þannig að við tökum ekki ákvörðun um þetta fyrr en niðurstöður kosninga liggja fyrir. Skoðanakannanir, eins góðar og þær nú eru, ráða ekki för okkar í þessum málum enda má sjá það að þær eru ansi breytilegar dag frá degi þessa dagana og margir flokkar sem liggja þétt saman í aðdraganda kosninga. Þannig að það er alveg óbreytt afstaða okkar í VG. Við erum reiðubúin að mynda ríkisstjórn um þau málefni sem við setjum á oddinn.“

RÚV spurði Katrínu hvort einhver í forystu flokksins hafði haft afskipti af færslu Bjarkeyjar. Svaraði Katrín því til að málfrelsi ríkti innan raða flokksins. Var hún þá spurð hreint út hvort hún hafi beðið Bjarkeyju að fjarlægja færsluna.

„Ég ræddi við Bjarkeyju um færsluna af því að það voru frekar skiptar skoðanir innan hreyfingarinnar um þessi skilaboð.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Heillandi fól

Óttar Guðmundsson skrifar: Heillandi fól
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Safna undirskriftum til að skora á Alþingsmenn að stöðva málþófið

Safna undirskriftum til að skora á Alþingsmenn að stöðva málþófið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær