fbpx
Mánudagur 12.maí 2025
Eyjan

Flugfélagið sem aldrei hefur flogið komið með nýjan forstjóra og lífeyrissjóðirnir fjárfesta

Erla Dóra Magnúsdóttir
Mánudaginn 12. apríl 2021 16:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flugfélagið Play hélt lokað hlutafjárútboð sem lauk  nú fyrir helgi. Í útboðinu skráðu fjárfestar sig fyrir meira en 40 milljónum dala, eða rúmlega fimm milljarðar íslenskra króna. Eins hefur verið tilkynnt að Birgir Jónsson hafi verið ráðinn forstjóri félagsins.

Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins. Þar segir að meðal fjárfesta séu lífeyrissjóðirnir Birta og Lífsverk en einnig eitt umsvifamesta fjárfestingafélag landsins, Stoðir.

Lengi hefur verið beðið eftir að flugfélagið tæki loks á flug, en COVID-faraldurinn setti þar strik í reikninginn og áform um að hefja flug síðasta sumar eða síðasta haust urðu að engu. Félagið mun hafa tryggt sér þrjár Airbus A321 leiguflugvélar til að hefja áætlunarflug á vinsæla áfangastaði Íslendinga í útlöndum.

Hins vegar er engin dagsetning komin á fyrsta flugið, og vefsíðan flyplay.com hefur ekki birt nýja frétt eða tilkynningu síaðn 28. maí 2020 í ensku útgáfunni og 11. júní 2020.

Birgir Jónsson, sem áður var forstjóri Íslandspósts, tekur við stöðu forstjóra flugfélagsins frá Arnari Má Magnússyni, sem er einn þeirra fjögurra sem stofnaði félagið á sínum tíma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

„Hinn gullni tími“ – Trump missir sig í Hvíta húsinu

„Hinn gullni tími“ – Trump missir sig í Hvíta húsinu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Bergþór bergmálar málflutning SFS um ofurlaun í fiskvinnslu – „Þetta eru bara orðin hálauna- og, að miklu leyti, kvennastörf“

Bergþór bergmálar málflutning SFS um ofurlaun í fiskvinnslu – „Þetta eru bara orðin hálauna- og, að miklu leyti, kvennastörf“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Formaður Sjálfstæðisflokksins fór í vikulangt frí daginn áður en eitt stærsta mál þessa þings var tekið til fyrstu umræðu

Formaður Sjálfstæðisflokksins fór í vikulangt frí daginn áður en eitt stærsta mál þessa þings var tekið til fyrstu umræðu
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Vilhjálmur brýnir sinn gamla flokk – Vill að meira verði gert fyrir Breiðholtið

Vilhjálmur brýnir sinn gamla flokk – Vill að meira verði gert fyrir Breiðholtið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kvennaárinu er fagnað – í kvíða

Sigmundur Ernir skrifar: Kvennaárinu er fagnað – í kvíða
Eyjan
Fyrir 1 viku

Diljá Mist Einarsdóttir: Verðum að ávarpa þá tilfinningu þjóðarinnar að ekki sé eðlileg skipting ágóðans af sjávarútvegi

Diljá Mist Einarsdóttir: Verðum að ávarpa þá tilfinningu þjóðarinnar að ekki sé eðlileg skipting ágóðans af sjávarútvegi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Musk er Bandaríkjunum dýrkeyptur – Kostar 17.000 milljarða

Musk er Bandaríkjunum dýrkeyptur – Kostar 17.000 milljarða
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hæðast að stjórnarandstöðunni fyrir „vandræðalegan“ fund – „Hversu lengi ætlar íhaldið að halda þessum skrípaleik áfram?“

Hæðast að stjórnarandstöðunni fyrir „vandræðalegan“ fund – „Hversu lengi ætlar íhaldið að halda þessum skrípaleik áfram?“