fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Vitlaus og stórhættuleg barátta – „Þessir frjálshyggjumenn vilja því að fólk hafi frelsi til að smita aðra af lífshættulegri veiru!“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Mánudaginn 10. ágúst 2020 15:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikið hefur verið rætt undanfarna daga um hvaða leið íslenska samfélagið eigi að taka í COVID-19 faraldrinum. Ætti að herða aðgerðir eða slaka enn meira á þeim? Hafa stjórnvöld gengið of langt eða of skammt í aðgerðum hingað til? Og hvaða hagsmunir ættu að vega þyngst við val á aðgerðum, lýðheilsa eða efnahagur ?

Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði og sérfræðingur í hlutastarfi hjá Eflingu, telur að afstaða frjálshyggjumanna í COVID-19 málum sýni fram á að þeir meti einstaklingsfrelsið ofar öllu, að þeim ætti að vera í sjálfsvald sett hvort þeir smiti aðra eða hvort þeir geri það ekki. Þetta kom fram í grein sem Stefán skrifaði inn á Kjarnann.

Stefán bendir á að samkvæmt nýfrjálshyggjunni sé allt það sem frá ríkinu komi slæmt en allt sem frá einkaframtakinu komi gott. Þess vegna fari það öfugt ofan í frjálshyggjumenn þegar ríkið hafi afskipti á borð við þau sem ríkisstjórnin hefur gripið til sökum sóttvarna.

„Slæmt að stjórnvöld ráðskist með fólk og banni því að koma saman í fjölmenni, biðji það svo að þvo sér ótt og títt og að halda tveggja metra fjarlægð – hvað þá að mælast til að fólk hafi á sér sóttvarnargrímur í margmenni. Þetta telja frjálshyggjumenn afleitar skerðingar á frelsi einstaklinga“

Það sé þó alveg rétt að afleiðingarnar af COVID-19 á efnahaginn séu alvarlegar og sársaukafullar, en hins vegar væri það töluvert verra ef veiran fengi að ganga um landið óáreitt.

„Þessir frjálshyggjumenn vilja því að fólk hafi frelsi til að smita aðra af lífshættulegri veiru!“

Stefán bendir á að engu að síður þá sé það samkvæmt vestrænni frjálslyndisstefnu ekki talið að í frelsi einstaklingsins felist frelsið til að skaða aðra. Það séu mörk á einstaklingsfrelsinu og þegar yfir þau er farið þá sé frelsið ekki lengur frelsi heldur ofbeldi og kúgun.

„Einfeldnisleg og sjálf­hverf bar­átta frjáls­hyggju­manna núna gegn sótt­varn­ar­að­gerðum er einnig í senn vit­laus og stór­hættu­leg – bein­línis lífs­hættu­leg.

Við þurfum lækna til að koma viti í koll­inn á þessu frjáls­hyggju­fólki!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2