fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Næstu skref vegna Covidkreppunnar samþykkt í ríkisstjórn

Trausti Salvar Kristjánsson
Föstudaginn 15. maí 2020 15:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvörp fjármála- og efnahagsráðherra, félags- og barnamálaráðherra og dómsmálaráðherra. Frumvörpin eru hluti af framhaldsaðgerðum stjórnvalda í efnahagsmálum vegna heimsfaraldurs kórónaveiru sem kynntar voru þann 28. apríl sl.

Frumvörpin sem um ræðir eru framhald hlutastarfaleiðar með breytingum, aðstoð vegna launakostnaðar á uppsagnarfresti, einföldun á fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja og atvinnurekstrarbann til að sporna við kennitöluflakki, samkvæmt tilkynningu á vef Stjórnarráðsins

Þar kemur eftirfarandi fram:

Frumvarp um fjárstuðning vegna launakostnaðar á uppsagnarfresti

Fjármála- og efnahagsráðherra leggur fram frumvarp um fjárstuðning úr ríkissjóði til greiðslu hluta launakostnaðar atvinnurekenda á uppsagnarfresti launþega með það að markmiði að draga úr líkum á fjöldagjaldþrotum fyrirtækja og tryggja réttindi launafólks. Skilyrði fyrir stuðningnum eru að veruleg  fjárhagsleg röskun hafi orðið á atvinnurekstri vegna ráðstafana sem gripið hefur verið til eða aðstæðna sem að öðru leyti hafa skapast vegna faraldurs kórónuveiru.

Úrræðið sem felst í frumvarpinu tekur til þeirra sem stunda atvinnurekstur, hófu starfsemi fyrir 1. desember 2019 og bera ótakmarkaða skattskyldu hér á Íslandi. Stuðningurinn nemur að hámarki 85% af launakostnaði starfsmanns á uppsagnarfresti, þó að hámarki 633.000 kr. á mánuði vegna launa og að hámarki 85.455 kr. á mánuði vegna lífeyrissjóðsiðgjaldshluta atvinnurekanda og að hámarki 1.014.000 kr. vegna orlofslauna sem launamaður kann að eiga rétt á, fyrir fullt starf og hlutfallslega fyrir hlutastarf. Stuðningurinn er veittur á samningsbundnum uppsagnarfresti starfsmanns, þó aldrei lengur en í þrjá mánuði. Lagt er til að Skatturinn sjái um framkvæmd úrræðisins og að umsóknarferlið verði rafrænt.

Hlutastarfaleið framlengd með breytingum

Hlutastarfaleið verður lengd til 31. ágúst 2020 með tilteknum breytingum sem meðal annars lúta að starfsemi fyrirtækja með frumvarpi félags- og barnamálaráðherra. Má þar nefna skilyrði um 25% samdrátt í starfsemi vinnuveitenda frá 1. mars 2020 og til þess dags sem launamaður sækir um atvinnuleysisbætur eða staðfestir áframhaldandi nýtingu sína á hlutabótaleiðinni.

Vinnumálastofnun hefur fengið auknar heimildir til gagnaöflunar og verður þannig heimilt að krefja vinnuveitendur um endurgreiðslu atvinnuleysisbóta auk 15% álags komi í ljós að skilyrði fyrir greiðslu bótanna hafi ekki verið uppfyllt. Vinnuveitendum sem nýta leiðina verður gert að staðfesta að þeir hafi  ekki í hyggju að greiða út arð til hluthafa, lækka hlutafé með greiðslu til hluthafa, greiða óumsamda kaupauka, kaupa eigin hlutabréf eða greiða eigendum sínum eða æðstu stjórnendum mánaðarlaun sem nema hærri fjárhæð en 3.000.000 kr til 31. maí 2023. Þá verður Vinnumálastofnun heimilt að birta lista yfir vinnuveitendur launafólks sem fær greiddar bætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli.

Heimilt verður að miða við mánaðarleg meðallaun ársins 2019 og taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem greiðslur Fæðingarorlofsjóði miðuðust við hafi launamaður fengið greiðslur úr sjóðnum á því tímabili sem horft er til.

Fjárhagsleg endurskipulagning atvinnufyrirtækja og aðgerðir gegn kennitöluflakki

Dómsmálaráðherra leggur fram tvö frumvörp um tímabundna einföldun á fjárhagslegri endurskipulagningu og um aðgerðir gegn kennitöluflakki. Komið verði á fót nýju úrræði er lýtur að fjárhagslegri endurskipulagningu þannig að fyrirtækjum, sem orðið hafa fyrir verulegri afkomuröskun, verði heimilt að fá greiðsluskjól á meðan unnið er að endurskipulagningu á fjárhag þess að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Úrræðið mun hjálpa fyrirtækjum að komast í skjól með einfaldari og kostnaðarminni hætti. Með frumvarpi um aðgerðir gegn kennitöluflakki verði gerðar breytingar til að sporna við kennitöluflakki og misnotkun hlutafélagaformsins, þannig að dómara verði heimilt að úrskurða þann sem ekki telst hæfur til að stýra hlutafélagi, einkahlutafélagi og í vissum tilvikum samlagshlutafélagi, í atvinnurekstrarbann sem að meginreglu vari í þrjú ár vegna alvarlegri tilvika. Tilgangur þess er að vernda almenning og samfélagið í heild sinni fyrir misnotkun á hlutafélagaforminu og á ekki að þrengja að frumkvöðlastarfsemi né draga úr hvata til að taka þátt í atvinnurekstri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins