fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Hörður svarar „ómerkilegu bragði“ heimildamanna Moggans – „Ýta undir algengan misskilning“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 7. apríl 2020 12:15

Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hörður Arnarsson, forstjóri Landsvirkjunar, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar Morgunblaðsins í dag þar sem fullyrt er að Rio Tinto skoði að stöðva framleiðslu sína í tvö ár og hyggi á málaferli gegn Landsvirkjun. Hörður segir fullyrðingarnar sem birtist á síðum Morgunblaðsins vera frumlegar og þar sé beitt ómerkilegum brögðum af hálfu ónafngreindra heimildamanna.

Sjá nánar: Íhuga að loka álverinu í Straumsvík í tvö ár – Telja Landsvirkjun hafa stundað vörusvik

„Eins og ítrekað hefur komið fram eiga Landsvirkjun og Rio Tinto nú í viðræðum um þá kröfu Rio Tinto að raforkusamningur vegna álversins í Straumsvík verði endurskoðaður.Í Morgunblaðinu í dag fara ónafngreindir heimildarmenn blaðsins fram með fullyrðingar sem aldrei hafa komið fram í viðræðum fyrirtækjanna – og fulltrúar Rio Tinto í þeim viðræðum geta staðfest –  þ.e. að Rio Tinto íhugi nú að leggja niður starfsemi í Straumsvík í tvö ár og sé jafnframt að íhuga málaferli gegn Landvirkjun, til að fá raforkusamningi hnekkt.“

Þá segir Hörður það furðu sæta ef Rio Tinto skilyrði kjarasamninga við raforkusamninga við Landsvirkjun:

Þá er því jafnframt haldið fram, að nýundirritaðir kjarasamningar Rio Tinto við starfsmenn séu háðir því skilyrði að nýir raforkusamningar náist fyrir júnílok. Það sætir auðvitað furðu, ef rétt er, að alþjóðlega risafyrirtækið Rio Tinto hafi skilyrt  kjarasamninga við starfsmenn sína á Íslandi aðgerðum fyrirtækis í eigu íslensku þjóðarinnar, sem hefur ekkert með þá kjarasamninga að gera,“

segir Hörður.

Ómerkilegt bragð

Hörður segir heimildamenn Morgunblaðsins ýta undir algengan misskilning:

„Frumlegasta fullyrðing heimildarmanna Morgunblaðsins er sú, að álverið í Straumsvík ætli í mál þar sem orkan til álversins sé ekki frá vatnsaflsvirkjunum, eins og um hafi verið samið. Samkvæmt raforkureikningum sé orkan í raun frá kola- og kjarnorkuverum og því um vörusvik að ræða gagnvart Rio Tinto. Þarna beita heimildarmennirnir því ómerkilega bragði að ýta undir algengan misskilning um eðli svokallaðra upprunavottorða, sem Landsvirkjun selur og skapa fyrirtækinu og þar með íslensku þjóðinni auknar tekjur af auðlind sinni. Það er rétt að ítreka, að Landsvirkjun fór um miðjan febrúar fram á að trúnaði yrði aflétt af samningnum við Rio Tinto, svo hægt væri að tryggja gagnsæi í umræðum um hann. Rio Tinto hefur ekki enn orðið við því.“

Erfið staða allra

Hann nefnir að heimildarmönnum Morgunblaðsins sé tíðrætt um erfiða afkomu Rio Tinto:

„Það blasir auðvitað við að staða fyrirtækja almennt er ákaflega erfið um þessar mundir. Í fréttum af erfiðleikum Rio Tinto og taprekstri undanfarinna ára í Straumsvík er því hins vegar sjaldan haldið á lofti að álverið hér greiddi móðurfélagi sínu 130 milljónir dollara í arð árið 2017. Á þeim tíma var sú arðgreiðsla hærri en samanlagðar skattgreiðslur og allur arður Landsvirkjunar frá upphafi til eiganda síns, íslensku þjóðarinnar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt