fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Segir Frosta vera úlf í sauðargæru – „Með ósannindi og hálfsannleik að vopni“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 30. mars 2020 09:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Birgir Hrafnsson, gítarleikari og samfélagsrýnir, gagnrýnir Frosta Sigurjónsson, fyrrverandi þingmann Framsóknarflokksins harðlega í innsendri grein í Fréttablaðinu í dag.

Tilefnið er framganga Frosta gagnvart aðgerðum stjórnvalda vegna Covid-19, en Frosti hefur gagnrýnt aðferðafræðina harðlega. Birgir nefnir Frosta ekki á nafn, en ekki fer á milli mála um hvern er skrifað:

„Það vakti eftirtekt þegar fyrrum alþingismaður birti pistil á fésbók sinni, þar sem hann lýsti almennum efasemdum um aðgerðir og ákvarðanir sóttvarnalæknis og annarra íslenskra yfirvalda í tengslum við COVID-19 veiruna. Hann bætti um betur og í viðtali í útvarpsþætti nokkrum hélt hann því fram að „útlendingum frá hættusvæðum hefði verið hleypt óskimuðum inn í landið til þess að koma smiti inn í samfélagið“ og virtist þar með ekki hafa fylgst með fréttaflutningi af skíðaglöðum Íslendingum í Ölpunum. Þá klykkti hann út með hjartnæmu, opnu bréfi til forsætisráðherra, þar sem hann sagði meðal annars: „Þú ert vonandi mjög hugsi, enda hvílir ábyrgðin nú á þínum herðum og ríkisstjórnarinnar. Það er ekki hægt að vísa ábyrgð á sóttvarnalækni, nú þegar öllum má vera ljóst að aðferð hans er röng og getur leitt til stórtjóns.“

Þekkt áróðursbragð

Birgir segir Frosta fara frjálslega með sannleikann:

„Ofangreind atburðarás lýsir þekktu áróðursbragði. Með ósannindi og hálfsannleik að vopni er reynt að sá efasemdafræjum í huga fólks. Þrátt fyrir að margir láti sér fátt um finnast (sem betur fer), liggur óhróðurinn eftir eins og tyggjóklessa, sem erfitt getur reynst að hreinsa upp að fullu, eins og jafnan er um tyggjóklessur. Þannig má segja að bragðið hafi heppnast í þeim fáránleika að í sjónvarpsþætti þurftu yfirvöld að sverja þennan áburð af sér og voru einnig fluttar fréttir af því.“

Miðflokkurinn litlu skárri

Birgir minnist einnig á auglýsingu Miðflokksins um aðra helgi:

„Sjaldan er ein báran stök og þingflokkur stjórnmálaflokks nokkurs birti heilsíðu auglýsingu af svipuðum (eða sama?) meiði í dagblöðum laugardaginn 21. mars. Þrátt fyrir öllu settlegri tón, fer ekki á milli mála að boðskapurinn er sama eðlis og megum við líklega búast við meiru af slíku á næstunni. Á óvissutímum sem þessum ræður úrslitum að allir leggist á eitt. Til viðbótar við dyggðir eins og samheldni, yfirvegun, sannleiksást og náungakærleik, er einnig mikilvægt að „mæla þarft eða þegja.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki