fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Landvernd kærir framkvæmdaleyfi vegna vegar um Teigsskóg

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 26. mars 2020 08:45

Auður Önnu Magnúsdóttir, Framkvæmdastjóri Landverndar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Landverndar telur að framkvæmdaleyfi sem sveitastjórn Reykhólahrepps veitti Vegagerðinni  vegna veglagningar í Teigsskógi brjóti í bága bæði við náttúruverndarlög og skipulagslög. Þá telja samtökin að stjórnarskrárákvæði um sjálfstæði sveitarfélaga hafi ekki verið virt. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Það er því óhjákvæmilegt að Landvernd sem umhverfisverndarsamtök að krefjist stöðvunar framkvæmda og ógildingu framkvæmdaleyfis vegna form- og efnisannmarka. Stjórn Landverndar telur að lagfæringar á vegum í Reykhólahreppi séu nauðsynlegar. Hins vegar hefur ekki  verið sýnt fram á brýna nauðsyn þess að velja ÞH-leiðina, Teigsskógarleið, umfram aðrar leiðir sem hafa verið metnar.“

Teigsskógur er stærsta samfellda skóglendi á Vestfjörðum. Hann er óslitinn frá fjöru og upp í hlíðar og myndar einstakt samspil með leirum og grunnsævi.  Báðar þessar vistgerðir, birkiskógurinn og leirurnar njóta verndar Náttúruverndarlaga.  Þá er svæðið allt er verndað með sérlögum um Breiðafjörð og áhrifasvæði framkvæmdanna eru á náttúruminjaskrá. 

„Sveitastjórn hefur með veitingu framkvæmdaleyfis brotið gegn náttúruverndarlögum þar sem ekki hefur verið sýnt fram á brýna nauðsyn þess að raska birkiskóginum og leirunum til að bæta samgöngur. Aðrar leiðir til að bæta samgöngur hafa verið metnar með minni umhverfisáhrif og hefðu því verðið betri kostur.  

Stjórn Landverndar telur því að sveitastjórnin og Vegagerðin hafi ekki farið eftir niðurstöðu valkostamats. Fjárhagslegir hagsmunir einir virðast hafa ráðið leiðarvali.  Slíkt er ekki réttætanlegt.  Umhverfismat væri í raun óþarft ef eingöngu þyrfti að horfa til kostnaðar við ákvörðun um val á vegstæði.

Þá telur stjórn Landverndar að í ákvörðunarferlinu hafi verið brotið gegn 78. grein stjórnarskrár um sjálfræði sveitarfélaga og að gegið hafi verið gegn skipulagslögum. Eins og fram kemur í bókunum sveitastjórnarfulltrúa Reykhólahrepps beitti Vegagerðin sveitastjórnina þvingunum til þess að fá ÞH-leið, Teigskógarleið, samþykkta. „

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus