Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 94 meðlimi. Í Ásatrúarfélaginu hefur fjölgað um 74 meðlimi. Mest fækkun var í þjóðkirkjunni eða um 129 og í zuism fækkaði um 83 meðlimi samkvæmt Þjóðskrá Íslands.
Alls voru 231.025 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. febrúar síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.618 meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.002 meðlimi.
Alls voru 26.229 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. febrúar sl. eða 7,4% landsmanna. Alls eru 52.731 landsmanna með ótilgreinda skráningu eða 14,5%.