fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Björn kallar Bjarna „floppstjórnmálamann“ – Spyr hvort um sé að ræða einbeittan brotavilja

Jón Þór Stefánsson
Þriðjudaginn 29. desember 2020 10:10

Samsett mynd - Björn Leví og Bjarni

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Leví Gunnarson, þingmaður Pírata, fjallaði um þorláksmessumál Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra, í pistli sem birtist í Morgunblaðinu í morgun. Þar fjallaði hann um að Bjarni skyldi vera kallaður „toppmaður“ á samfélagsmiðlum. Björn segist ekki draga þá lýsingu í efa, en kallar hann þó sjálfur „floppstjórnmálamann“.

„Toppmaður“ var athugasemd á samfélagsmiðlum undir frétt af sóttvarnabroti fjármálaráðherra. Þetta er mjög merkileg fullyrðing í samhengi þeirra atburða sem við erum að ganga í gegnum. Í samhengi þeirrar hegðunar sem birtist okkur á aðfangadagsmorgun.

Í kjölfar fyrstu frétta af málinu, þar sem óljóst var hvaða ráðherra hafði sótt fjölmennt teiti í miðbænum, hefur komið fram afsökunarbeiðni um að húsið hafi fyllst á þeim 15 mínútum sem ráðherra var í samkvæminu. Afsökunarbeiðni sem lætur sóttvarnabrotið líta út fyrir að vera yfirsjón og óheppilegt hliðarspor í annars vel heppnuðum kúlujólum.

Dagbók lögreglu og vitni lýsa atburðum Þorláksmessu hins vegar á annan hátt. Húsið hafi verið troðfullt þegar ráðherra bar að garði og hann hafi verið þar nær klukkutíma en 15 mínútum. Ekki er nóg með að ráðherra hafi þannig brotið sóttvarnalög heldur er afsökunarbeiðnin full af rangfærslum um atvik máls.“

Björn segist ekki efast um að Bjarni sé „toppmaður“ sem faðir, afi, eða eiginmaður, en bendur á að slíkt færist ekki endilega yfir í pólitík. Þá segir hann að maður þurfi ekki endilega að vera góður í fótbolta, eða góður í að baka köku til að vera góður í stjórnmálum.

„Ég efast ekki um að sá sem gegnir stöðu fjármálaráðherra sé ágætis faðir, afi og eiginmaður. Að hann reynist vinum og fjölskyldu vel og sé í allan stað toppmaður á þeim vettvangi. Slíkt ágæti yfirfærist hins vegar ekki sjálfkrafa yfir í pólitíkina. Að vera góður í fótbolta gerir þig ekki að góðum stjórnmálamanni. Að vera góður að baka gerir þig ekki að góðum stjórnmálamanni. Að vera hávaxinn gerir þig ekki að góðum stjórnmálamanni. Að þú klæðir þig vel gerir þig ekki að góðum stjórnmálamanni.

Kannski er líklegra að toppmaður sé góður stjórnmálamaður en einhver auli en það er ekki sjálfsagt og af verkunum skuluð þið þekkja þá. Það er mjög skiljanlegt að við reynum að velja toppfólk í ábyrgðarstöður. Það ætti því að vera jafn skiljanlegt að við hættum að velja fólk sem stendur ekki undir þeirri ábyrgð.“

Að lokum spyr Björn sig hvort að hægt sé að fyrirgefa brot Bjarna ef að í afsökunarbeiðni hans kemur ekki allt satt og rétt fram. Auk þess spyr hann hvort um sé að ræða einbeittan brotavilja. Og þá fullyrðir hann að í stjórnmálum sé Bjarni enginn toppmaður, og kallar hann „floppstjórnmálamann“.

„Formaður VG kallar þetta sóttvarnahliðarspor og formaður Framsóknarflokks kallar þetta óheppilegt og minnir á stóru myndina; að þegar menn hafa beðist afsökunar og útskýrt mál sitt eigi að vera svigrúm til þess að virða það og fyrirgefa. En er þetta hliðarspor eða hluti af einbeittum brotavilja? Það muna allir eftir vinkonuhittingi annars ráðherra úr sama flokki frá því rétt fyrir vetrarbylgjuna. Það ættu allir að kannast við andmæli þingmanna sama flokks um sóttvarnaaðgerðirnar. Að auki lítur út fyrir að ekki sé allt satt og rétt í afsökunarbeiðninni. Hvernig á að bera virðingu fyrir því? Hvernig á fyrirgefning að geta byggst á slíkri afsökunarbeiðni?

Já. Fjármálaráðherra er kannski toppmaður. En það verður seint hægt að sýna fram á þá eiginleika á stjórnmálaferli hans, allt frá sögunni um sjóð 9 til skattaskjólsskýrslna og til sóttvarnabrota. Niðurstaðan hlýtur að segja okkur að þar sé á ferð floppstjórnmálamaður.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2