fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Haukur segir líklegt að Ísland verði lamað – „Lengri tíma áhrif bóluefnisins eru ekki þekkt“

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 10. nóvember 2020 13:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir að fátækt og hörmunugar vegna lokunarstefnunnar muni koma betur í ljós á næstu árum. Þetta segir Haukur í pistli sem birtist á Miðjunni í dag.

Í upphafi pistilsins segir Haukur frá því sem danskur bólusetningarsérfræðingur sagði í liðinni viku. Það er að það komi ekki til greina að bólusetja ungt fólk og börn gegn COVID-19. „Raunar má reikna með að fólk á barneignaaldri eigi alls ekki að láta bólusetja sig,“ segir Haukur í pistlinum og nefnir ástæðuna fyrir þessu.

„Þetta er vegna þess að lengri tíma áhrif bóluefnisins eru ekki þekkt í svona snöggsoðnu bóluefni (þróun þeirra tekur yfirleitt 10 ár eða meira). Þá má líka minna á að bóluefnið við SARS-veirunni var mikið hættulegra en sjúkdómurinn, en það olli svefnsýki hjá börnum og ungu fólki og mikill fjöldi fórnarlamba hafa ekki náð sér enn og sumir eru öryrkjar fyrir lífstíð.“

Haukur segir að þetta þýði að Covid-19 faraldurinn verði að ganga yfir. „Enda engin ástæða til annars þar sem ungt fólk og börn fær veikina oft einkennalaust eða vægt. Það er bara spurning hvenær hann gengur yfir. Nú er svo komið að rétt kann að vera að bíða eftir bóluefni fyrir viðkvæma hópa og aldraða – en þá getur tekið allt að 1,5 ár að faraldurinn gangi yfir. Á meðan verða miklar takmarkanir á ferðafrelsi og samkomufrelsi og allar varúðarráðstafanir í gangi (vonandi verður málfrelsi komið á) – til að hemja yfirferðina,“ segir Haukur sem hefur áhyggjur af því að faraldurinn eigi eftir að lama Ísland.

„Það er því líklegt að faraldurinn muni lama Ísland nokkuð lengi héðan í frá – og við eigum eftir að sjá Svíþjóð sem virti mannréttindi og lét faraldurinn hefjast strax í febrúar 2020 verða langt á undan við að koma efnahag sínum af stað á ný. Fátæktin og hörmungarnar sem lokunarstefnan leiðir af sér hér á landi eiga eftir að koma betur í ljós á næsta ári og 2022.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki