Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, mun taka á sig launalækkun frá og með 1. janúar næstkomandi. Ástæðan er erfiðleikar í rekstri sveitarfélaga vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar.
Þetta kemur fram í frétt Vikublaðsins.
Kristján Þór lagði fram minnisblað nýlega þar sem kom fram að Norðurþing hafi fundið fyrir rekstrarerfiðleikum vegna heimsfaraldursins og útkomuspá fyrir fjárhagsárið 2020 benti til þess að einnig verði um mikinn hallarekstur að ræða á næsta ári.
Því sé nauðsynlegt að grípa til hagræðingaraðgerða en reyna þó að halda í störf og auka ekki atvinnuleysisvandann í sveitarfélaginu og hætta með því á brottflutning fólks.
Byggðarráð Norðurþings lagði til að laun kjörinna fulltrúa og nefndarmanna yrðu lækkuð frá 1. janúar næst komandi um liðlega 6 prósent. Við þetta væri hægt að spara um 3,6 milljónir. Lagt var til að lækkunin gildi út árið 2021.