Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, sendir Viðreisn væna pillu í pistli dagsins. Segir hann neikvæðni vera hluta af eðli flokksins, sem þrífist á að tala illa um Sjálfstæðisflokkinn.
Tilefnið er meðal annars grein Benedikts Jóhannessonar, fyrrverandi formanns og eins stofnanda Viðreisnar í Morgunblaðinu í dag, þar sem Benedikt sendir Birni og Sjálfstæðismönnum pillu vegna þriðja orkupakkans.
Björn segir um þetta:
„Er ekki nein jákvæð stefna leiðarljós Viðreisnar um þessar mundir heldur áreiti í garð annarra með misvísandi tilvitnunum í einstaklinga í von um að á þann veg megi styrkja málstað flokksins,“
Björn minnist einnig á að Viðreisn hafi barist fyrir ESB aðild með litlum árangri, „svo að vægt sé til orða tekið.“
Hann vísar einnig til fréttaskrifa á Hringbraut og Fréttablaðinu, miðla sem eru í eigu Helga Magnússonar, eins stofnenda Viðreisnar:
„Á vefsíðu Hringbrautar og í húskarlahorni Fréttablaðsins er leitast við að draga upp sem neikvæðasta mynd af Sjálfstæðisflokknum,“
segir Björn en Hringbraut fjallaði um þegar almannatengillinn Andrés Jónsson hélt því fram í Silfrinu að sjálfstæðismenn hefðu haldið krísufundi í Valhöll þegar Miðflokkurinn hefði mælst stærsti flokkur landsins.
„Í húskarlahorni Fréttablaðsins eru þessi orð túlkuð á þennan hátt mánudaginn 27. janúar: „Útskýrir þetta fýlusvipinn á ráðherrum flokksins eftir krísufund í Valhöll á mánudaginn síðastliðinn.““
skrifar Björn og er ekki skemmt yfir þessum fréttaskrifum:
„Stjórnmálagreiningar af þessu tagi rista ekki djúpt og breyta engu til eða frá. Þær eru hins vegar dæmigerðar fyrir málgögn þeirra sem eru án stefnu og telja að meta eigi gang mála af því hvort menn komi saman til funda eða hver séu svipbrigði þeirra.“
Björn lætur einnig borgarfulltrúa Viðreisnar heyra það og segir þá ganga lengra en borgarstjóri og Samfylkingin, við að ögra borgarbúum með einkennilegri afstöðu og yfirlýsingum:
„Hvert vandræðamálið rekur annað en ávallt eru Viðreisnarfulltrúarnir tilbúnir til að sópa vandanum undir teppið.“
Þá segir Björn að Viðreisn sé reist á neikvæðni og þrífist á að tala illa um Sjálfstæðisflokkinn:
„Nú virðist Viðreisn helst þrífast á að tala illa um Sjálfstæðisflokkinn megi marka málgögn hans og skrif forystumanna flokksins auk hollustu hans við Samfylkinguna í borgarstjórn Reykjavíkur. Flokkur reistur á neikvæðni lifir aldrei lengi.“