fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

„Þetta er ein ástæðan fyrir því að ekki er hægt að vinna með þessum flokki“

Jón Þór Stefánsson
Föstudaginn 28. ágúst 2020 19:00

Samsett mynd - Dóra Björt, oddviti Pírata og Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í Reykjavík fer hörðum orðum um Sjálfstæðisflokkinn í pistli sem birtist á Vísi í dag. Hún segir að flokkurinn tali gjarnan fyrir frelsi, en reyni þrátt fyrir það að gera Ísland að eftirlitssamfélagi.

Hún ræðir tillögu flokksins um að fjölga eftirlitsmyndavélum í úthverfum Reykjavíkurborgar. Tillagan var felld, en Dóra segir að fleiri öryggismyndavélar myndu verða til þess að borgarar finndust þeir óöryggir, á meðan að glæpir færðust annað.

„Tillaga Sjálfstæðisflokksins um fjölgun eftirlitsmyndavéla í úthverfum borgarinnar var felld af meirihlutanum í borgarráði í gær. Sjálfstæðisflokknum í borginni er sérstaklega umhugað um að ala á óöryggi og óánægju. Þetta mál er hluti af þeirri pólitík.

Notkun á eftirlitsmyndavélum getur haft í för með sér að fólk fer að upplifa sig sem hugsanlegt skotmark þeirra sem vilja fylgja öllum reglum með stálhnefa á meðan raunverulegir glæpir færast út fyrir sjónarsvið myndavélanna. Slíkt getur líka skapað vantraust milli íbúa og yfirvalda. Ef efla þarf öryggi eru margar betri leiðir í boði. Ofnotkun eftirlitsmyndavéla til að sefa stjórnmálamenn með eftirlitsblæti skapar falskt öryggi sem gagnast almenningi ekkert heldur þvert á móti gengur gegn hagsmunum fólks.

Það er með Sjálfstæðisflokkinn í þessu máli eins og öðrum að verulegt ósamræmi er milli hljóðs og myndar. Þau segja eitt, gera annað og segja svo eitthvað allt annað og neita fyrir að hafa nokkurn tímann gert hitt. Telja sig hafa fundið upp frelsið en kalla svo ítrekað eftir að almenningur búi í eftirlitssamfélagi.“

Dóra ræðir þá ósamræmi Sjálfstæðisflokksins, á milli borgar, sveitar og þings. Hún segir ómögulegt að vinna með Sjálfstæðisflokknum vegna þessa, maður viti nefnilega aldrei hvað maður fái.

„Sama sagan gildir um samgöngumálin þar sem meirihluti borgarstjórnarflokksins talar gegn framtíðinni, umhverfinu og fjölbreyttari ferðamátum en vilja frekar ,,efla strætó” eins og það sé ekki nákvæmlega það sem verið er að gera. Þau vilja bara ekki kalla það borgarlínu. Og svo talar flokkurinn á þingi og í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur fyrir samgöngusamningi á höfuðborgarsvæðinu á meðan borgarstjórnarflokkurinn er á móti. Reykjavík er harðlega gagnrýnd af sama borgarstjórnarflokki fyrir mikla skuldasöfnun en ekkert er minnst á nágrannasveitarfélögin sem eru leidd af Sjálfstæðisflokknum og hafa hlutfallslega mun hærri skuldir.

Þetta er ein ástæðan fyrir því að ekki er hægt að vinna með þessum flokki. Þú veist nefnilega ekkert hvað þú færð þegar þú kýst Sjálfstæðisflokkinn. Minnsti snefill af hugmyndafræði fær að víkja fyrir hentistefnu hverju sinni. Vandræðagangurinn er svo mikill að Sjálfstæðisflokkurinn endaði á því að sitja hjá við afgreiðslu eigin tillögu.“

Að lokum vitnar Dóra í pistil Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra sem birtist í Morgunblaðinu árið 2018. Þar sagði Áslaug að ekki væri hægt að mála sig upp sem talsmann frelsis þegar að maður talaði einnig fyrir auknu eftirliti og regluverki.

„Ætla ég annars að taka undir með orðum Áslaugar Örnu, dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, sem ég tel eiga vel við:

„Þeir sem tala fyrir (…) auknum eft­irlits­iðn­aði og auknu regluverki geta ekki skreytt sig með frjáls­lynd­isfjöðrum. (…) Jafn­vel þótt þeir detti öðru hvoru inn á eitt og eitt mál sem kalla mætti frels­is­mál, þá fellur það í skugg­ann af stjórn­lynd­inu sem þeir boða á hverjum degi.“ “

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki