

Þingmaður Viðreisnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, beindi í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag þeirri spurningu til Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, að þar sem til fundar hefur verið boðað á föstudag og stjórnarskrá, hvort hún væri ekki tilbúin að taka þar til skoðunar að setja ákvæði um jafnt vægi atkvæða Íslendinga. Það er, að einn maður fái eitt atkvæði. Sama hvar á landinu hann búi.
Þorgerður benti á að samkvæmt skoðanakönnun um viðhorf almennings til nýrrar stjórnarskrár er meirihluti landsmanna hlynntur því að kjördæmaskipan og vægi atkvæða verði tekið til endurskoðunar. en í könnuninni svöruðu 74 prósent svarenda að þeir vildu að atkvæðamagn vegi jafnt á öllu landinu. Því spurði Þorgerður forsætisráðherra hvort hún ætlaði að beita sér fyrir því að þessi vilji þjóðarinnar yrði virtur.
Katrín benti á að umrætt atkvæði væri ekki á skipulagðri dagskrá fyrir fundinn næstkomandi föstudag, en hún væri sjálf hlynnt því að taka þetta málefni til umræðu „Ég hyggst taka það upp á fundinum“
„Þetta er gríðarlega mikilvæg yfirlýsing sem hér er gefin,“ sagði Þorgerður í kjölfarið. Enda væri ljóst hvar vilji þjóðarinnar lægi í þessum málum, og jafnvel þó aðrir flokkar í ríkisstjórnarsamstarfinu en vinstri grænir væru ekki tilbúnir að taka slíkt ákvæði inn í stjórnarskrá, þá væru fleiri flokkar sem styddu slíkt ákvæði og því mögulegt að fá fyrir því meirihluta. Það sé grundvallar mál að á Íslandi vegi atkvæði manna jafnt.