fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Eyjan

Brynjar telur Ágúst Ólaf skorta tengingu við raunveruleikann

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 13. apríl 2020 15:21

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þingmaður Samfylkingarinnar, Ágúst Ólafur Ágústsson, viðraði í dag hugmyndir sínar um tíföldum listamannalauna, þ.e. að þiggjendum þeirra verði fjölgað úr 325 einstaklingum upp í um 3500.  Þessi fjölgun gæti komið til móts við listamenn sem horfi nú fram á svarta tíma sökum ástandsins í atvinnulífinu sökum COVID-19 faraldursins. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Brynjar Níelsson, gefur lítið fyrir þessar hugmyndir og segir Ágúst skorta tengingu við raunveruleikann:

„Hef stundum áhyggjur af því hvað stjórnmálamenn geti verið lítið tengdir veruleikanum. Það er ekki gott á víðsjárverðum tímum þegar hætta er á að samfélagið fari beinlínis á hliðina. Einn slíkur vaknaði í morgun með þá hugmynd að tífalda laun einnar stéttar,“ skrifar Brynjar í færslu á Facebook. Vísar hann þar til hugmynda Ágústar um rótækrar breytingar á fyrirkomulagi listamannalauna.

Ágúst telur að með slíkum aðgerðum gæti hið opinbera í reynd sparað fjármuni sökum minna atvinnuleysis og aukinna tekna frá listgreinum.

„Ef listin á að lifa þurfum við hin því að gera eitthvað. Þessi tillaga mun spara hinu opinbera með minna atvinnuleysi, en auk listsköpunar munu aukin umsvif listamanna skila miklu fjármunum í ríkissjóð. Listafólk hefur staðið með okkur, nú á þessum erfiðum tímum, en líka alltaf áður. Nú skulum við standa með þeim. Tíföldum listamannalaunin strax,“ sagði Ágúst Ólafur

Brynjar kveðst ekki skilja rökfærslu Ágústar. Af hverju að nema við tíföldum listamannalauna, af hverju ekki þúsundfalda þær frekar?

„Ekki geri ég lítið úr listamönnum, þótt ég hafi aldrei almennilega vitað hverjir tilheyra þeim hópi, og eru þeir sjálfsagt mikilvægir þegar sækir að þjóðinni depurð og kvíði. Náði samt ekki alveg rökunum um að það borgaði sig að tífalda launin að því að við fengjum það margfalt til baka. Af hverju bara tífalda launin ef sú er raunin. Væri þá ekki nær að hækka launin þúsundfalt á þessum erfiðu tímum. Það hlýti að duga til að bjarga okkur hinum.“

Sjá einnig:  Ágúst Ólafur vill tífalda listamannalaun – „Slíkt myndi kosta um 6,5 milljarða“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Að standa með liðinu eða standa með grundvallarréttindum – hvað varð um Piers Morgan?

Að standa með liðinu eða standa með grundvallarréttindum – hvað varð um Piers Morgan?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Ágúst Borgþór skrifar: Hrausti sjúklingurinn – Erum við að tala niður heilbrigðiskerfið?

Ágúst Borgþór skrifar: Hrausti sjúklingurinn – Erum við að tala niður heilbrigðiskerfið?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“