fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Kolbrún vill veita hjálparhönd, en óttast stóra reikninga – „Vá hvað ég er svekkt“

Eyjan
Mánudaginn 23. mars 2020 19:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kolbrún Dögg Arnardóttir, sem meðal annars stofnaði herferðina #Aldreiaftur, birti í kvöld færslu á Facebook þar sem hún fór yfir vankanta þess að vera í bakvarðarsveit. Hún lýsir stöðunni sem neyðarástandi vegna COVID-19 veirunnar

„Covid-19 neyðarástand- Bakvarðasveitin. Vá hvað ég er svekkt, enn á ný koma skerðingar í veg fyrir að að fólk geti hjálpað til þegar á reynir. Fjölskerðingarkerfið er REFSIVÖNDUR sem rígheldur fólki i sófanum.

Við hjónin ætluðum að leggja samfélaginu lið með því að vinna við aðhlynningu fatlaðra í gegnum Bakvarðarsveit Velferðarráðuneytisins.

Tryggingastofnun ríkisins er með sérstaka uppbót 33þ. á mán sem skerðist strax við fyrstu krónu þannig að eg þarf að borga hana afturvirkt til síðustu áramóta. 132þ. skert 65% þá þarf ég að borga til baka 85þ. Þá tekur við húsnæðisbótakerfið og skerðir frá heildarlaunum sem þíðir að þær lækka niður í 0kr.“

Kolbrún bendir á að ekki bæti úr skák að maðurinn hennar sé atvinnulaus og segir að sama hvaða leið sé farin þá þurfi þau að borga verulegar fjárhæðir.

Hún skorar að lokum á stjórnvöld að gera eitthvað í málinu.

„Ég skora á stjórnvöld að skoða sanngjarnari lausn svo að við sem heima sitjum og erum fær um rétta hjálparhönd getum það.“

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi