fbpx
Þriðjudagur 12.ágúst 2025
Eyjan

Þórdís kynnir Jafnvægisás ferðamála til leiks – Núverandi ástand nálgast þolmörk

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 27. september 2019 13:52

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Mynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við ætlum að vera leiðandi í sjálfbærri þróun. Við ætlum að hafa samkeppnishæfni að leiðarljósi og starfa í sátt við land og þjóð. Við ætlum að setja arðsemi framar fjölda ferðamanna, vinna að ávinningi heimamanna um allt land, gæta jafnvægis milli verndar og nýtingar og miða að einstakri upplifun, gæðum og fagmennsku. Það er mikilvægur áfangi að allir helstu hagsmunaaðilar séu sammála um þessa framtíðarsýn og  þessi leiðarljós. Og Jafnvægisásinn tryggir að við munum beina kröftum okkar í rétta átt til að ná settu marki,“

segir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í tilkynningu um Jafnvægisás ferðamála og Framtíðarsýnina, sem felur í sér háleit markmið um ferðaþjónustuna til næsta ára.

Jafnvægisásinnn

  • Jafnvægisásinn er nýtt, viðamikið og mikilvægt stjórntæki sem segir til um það hvar ferðaþjónustan stendur gagnvart yfir 60 mælikvörðum sjálfbærrar nýtingar.
  • Er þá horft til samfélagslegra, efnahagslegra og umhverfislegra þátta.
  • Þetta mun vera í fyrsta sinn í heiminum sem slíkt verkefni er unnið á landsvísu.
  • Mælikvarðarnir spanna allt frá ástandi náttúrunnar og ánægju heimamanna til framboðs á heimagistingu og ástandi vegakerfisins.
  • Meginniðurstaðan er að núverandi ástand sé á heildina litið farið að nálgast þolmörk. Að óbreyttu þolum við tveggja prósenta árlegan vöxt til ársins 2030 en við fimm prósenta vöxt værum við komin yfir þolmörk árið 2030.

Framtíðarsýn

„Íslensk ferðaþjónusta á að vera leiðandi í sjálfbærri þróun,“ segir í tilkynningunni.  Þetta er megináherslan í nýrri framtíðarsýn og leiðarljósum ferðaþjónustunnar til ársins 2030 sem unnin var í sameiningu af ráðuneyti ferðamála, Samtökum ferðaþjónustunnar og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Til að styðja við framtíðarsýnina hafa einnig verið sett niður markmið um að árið 2030 verði heildarútgjöld ferðamanna 700 milljarðar króna, yfir 90% landsmanna verði jákvæð í garð ferðaþjónustu, meðmælaskor erlendra ferðamanna verði hærra en 75 og virkri álagsstýringu hafi verið komið á.

Á vefnum anr.is/framtidarsyn má finna myndband um verkefnið, öll gögn og fræðslu um Jafnvægisásinn og Framtíðarsýnina.

Myndband um verkefnin:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Guðrún krefst þess að Kristrún segi eitthvað – „Við þurfum að tala skýrt“

Guðrún krefst þess að Kristrún segi eitthvað – „Við þurfum að tala skýrt“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vinsældir Trump minnka – Þær minnstu á kjörtímabilinu

Vinsældir Trump minnka – Þær minnstu á kjörtímabilinu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Helgi Seljan kom Guðlaugi í opna skjöldu – Ber við minnisleysi um sína eigin skýrslu

Helgi Seljan kom Guðlaugi í opna skjöldu – Ber við minnisleysi um sína eigin skýrslu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Foringi herforingjastjórnarinnar hrósaði Trump sem aflétti þá refsiaðgerðum og tollum gagnvart landinu

Foringi herforingjastjórnarinnar hrósaði Trump sem aflétti þá refsiaðgerðum og tollum gagnvart landinu
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Orðið á götunni: Tvær flugur slegnar í einu höggi – leiðin út fyrir Guðlaug Þór?

Orðið á götunni: Tvær flugur slegnar í einu höggi – leiðin út fyrir Guðlaug Þór?
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Björn Jón skrifar: Keisarinn veginn á kamrinum

Björn Jón skrifar: Keisarinn veginn á kamrinum