fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Starfsgreinasambandið fordæmir hækkanir á gjaldskrám og launum bæjarstjórnarmanna

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 28. nóvember 2019 17:24

Flosi Eiríksson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Starfsgreinasamband Íslands mótmælir hækkunum á gjaldskrám sveitarfélaga þessa dagana sem og hækkunum á launum bæjarstjórnamanna. Harðorð ályktum sambandsins um þetta er eftirfarandi:

 

„SGS fordæmir boðaðar hækkanir sveitafélaga

28.11.2019

Starfsgreinasamband Íslands mótmælir harðlega þeim hækkunum sem eru að koma fram víða hjá sveitarfélögunum um þessar mundir. Þar má nefna hækkanir á einstökum gjaldskrám á um annan tug prósenta, yfirgengilegar hækkanir á launum bæjarstjórnarmanna og verulegar hækkanir og breytingar á leigukjörum í félagslegu húsnæði. Fasteignagjöld hafa einnig hækkað mikið undanfarin ár og þó sum sveitarfélög hafi lækkað álagningarhlutfallið vegur það alls ekki upp á móti hækkun á Fasteignamati.

Allar þessar hækkanir eru brot á yfirlýsingu sem Samband íslenskra sveitarfélaga gaf út í tengslum við lífskjarasamninganna í vor. Í henni segir m.a.;

,,Til að stuðla að verðstöðugleika mun Samband íslenskra sveitarfélaga mælast til þess við sveitarfélögin að þau hækki ekki gjaldskrár sínar á árinu 2019 umfram það sem þegar er komið til framkvæmdar.Einnig mun sambandið mælast til þess við sveitarfélögin að á árinu 2020 muni gjöld á þeirra vegum hækka um 2,5% að hámarki, en minna ef verðbólga er lægri.“

Eitt af meginmarkmiðum lífskjarasamningsins er að lækka húsnæðiskostnað hjá þeim tekjulægstu og óskiljanlegt hvernig hækkun húsaleigu félagslegs húsnæðis samræmist yfirlýsingum sveitarfélaganna. Það er algerlega óþolandiað sjá þær kjarabætur sem samið var um í vor teknar beint af launafólki með þessum hækkunum sveitarfélaganna. Og ekki þarf að hafa mörg orð um þá sveitarstjórn sem hækkar sín eigin laun um 18-30% meðan ekki hefur náðst samningur milli SGS og sveitarfélaganna.

Félagsmenn okkar munu ekki sitja hljóðir hjá ef þeir eiga einir að standa við gerða samninga. SGS skorar  á Samband íslenskra sveitarfélaga og einstök sveitarfélög að standa við fyrrnefnda og axla með því ábyrgð á að markmiðsamninganna frá því í vor náist.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki