fbpx
Mánudagur 12.maí 2025
Eyjan

Er þetta rafskotta?

Egill Helgason
Mánudaginn 30. september 2019 13:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Allt í einu sér maður þessi farartæki út um allan bæ og unga og gamla á þeim – unglinga sem manni sýnist vera að prófa, sjötugan vin minn sem fór nokkra hringi á þessu í gær og varð ekki meint af og svo túristana sem nota þau til að komast hratt milli staða.

Það er meira að segja þegar farið að skrifa um árekstra af völdum þessara tækja og fólk sem er að nota þau undir áhrifum. Í fréttum eru þau kölluð rafhlaupahjól.

Það er frekar óþjált orð. Í morgun heyrði ég stungið upp á heitinu rafskotta. Það er þá byggt á sögninni að skottast – skottast á milli. Nú eru menn að reyna að nota orðið rafskúta – en einhvern veginn passar það illa. Siglingamaður sem drekkur með mér kaffi á morgnana var alveg á móti því.

Skottan hér efst á síðunni stóð á Skólavörðustígnum í morgun og beið eftir notanda. Hún mun vera ein af sextíu rafskottum sem eru á vegum leigu sem nefnist Hopp. Maður þarf að ná í sérstakt app til að nota farartækið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 11 klukkutímum
Er þetta rafskotta?

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

„Hinn gullni tími“ – Trump missir sig í Hvíta húsinu

„Hinn gullni tími“ – Trump missir sig í Hvíta húsinu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Bergþór bergmálar málflutning SFS um ofurlaun í fiskvinnslu – „Þetta eru bara orðin hálauna- og, að miklu leyti, kvennastörf“

Bergþór bergmálar málflutning SFS um ofurlaun í fiskvinnslu – „Þetta eru bara orðin hálauna- og, að miklu leyti, kvennastörf“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Formaður Sjálfstæðisflokksins fór í vikulangt frí daginn áður en eitt stærsta mál þessa þings var tekið til fyrstu umræðu

Formaður Sjálfstæðisflokksins fór í vikulangt frí daginn áður en eitt stærsta mál þessa þings var tekið til fyrstu umræðu
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Vilhjálmur brýnir sinn gamla flokk – Vill að meira verði gert fyrir Breiðholtið

Vilhjálmur brýnir sinn gamla flokk – Vill að meira verði gert fyrir Breiðholtið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kvennaárinu er fagnað – í kvíða

Sigmundur Ernir skrifar: Kvennaárinu er fagnað – í kvíða
Eyjan
Fyrir 1 viku

Diljá Mist Einarsdóttir: Verðum að ávarpa þá tilfinningu þjóðarinnar að ekki sé eðlileg skipting ágóðans af sjávarútvegi

Diljá Mist Einarsdóttir: Verðum að ávarpa þá tilfinningu þjóðarinnar að ekki sé eðlileg skipting ágóðans af sjávarútvegi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Musk er Bandaríkjunum dýrkeyptur – Kostar 17.000 milljarða

Musk er Bandaríkjunum dýrkeyptur – Kostar 17.000 milljarða
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hæðast að stjórnarandstöðunni fyrir „vandræðalegan“ fund – „Hversu lengi ætlar íhaldið að halda þessum skrípaleik áfram?“

Hæðast að stjórnarandstöðunni fyrir „vandræðalegan“ fund – „Hversu lengi ætlar íhaldið að halda þessum skrípaleik áfram?“