Hlín Hólm, deildarstjóri flugleiðsögudeildar Samgöngustofu, var kosin formaður stýrihóps flugleiðsögu á Norður-Atlantshafi (North Atlantic Systems Planning Group, NAT SPG) til næstu fjögurra ára á fundi Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) í París í gær. Hlín er fyrsta konan sem gegnir formennsku í hópnum en hún tekur við af Ágeiri Pálssyni framkvæmdastjóra flugleiðasögusviðs Isavia sem gegnt hefur formennsku undanfarin 20 ár. Þetta kemur fram á vef Samgöngustofu.
Hlutverk NAT SPG er að annast eftirlit með gæðum flugleiðsöguþjónustu innan NAT-svæðis ICAO, en svæðið spannar loftrýmið yfir Atlantshafinu frá norðurpól að 45 gráðum norðlægrar breiddar. Einnig stýrir NAT SPG innleiðingu nýrrar tækni, vinnuaðferða og staðla fyrir flugleiðsögu.
Aðildarríki NAT SPG eru Bandaríkin, Kanada, Ísland, Noregur, Danmörk, Stóra Bretland, Írland, Frakkland og Portúgal. Auk þeirra taka þátt fulltrúar frá IATA (alþjóðasamtökum flugfélaga), IBAC (alþjóðasamtökum flugrekenda einkavéla), IFALPA (alþjóðasamtök flugmanna), IFATCA (alþjóðasamtökum flugumferðastjóra) og INMARSAT (veitanda gervihnattaþjónustu).
Hlín Hólm er deildarstjóri flugleiðsögudeildar Samgöngustofu. Samgöngustofa ber ábyrgð á skipulagi loftrýmisins í lofthelgi Íslands og því loftrými sem Ísland ber ábyrgð á. Einnig veitir Samgöngustofa starfsleyfi vegna flugleiðsöguþjónustu og rekstrarstjórnun flugumferðar og hefur eftirlit með veitingu slíkrar þjónustu. Þessum verkefnum sinnir SGS í nánu samstarfi með starfsleyfishöfum, Isavia og Veðurstofu Íslands, sem og hagsmunaaðilum.