fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

Jón Þór: „Ef Ásmundi Einari barnaverndarráðherra er alvara um að vernda börn þá sýnir hann frumkvæði“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 26. nóvember 2018 10:06

Samsett mynd DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, hefur sent forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni bréf þar sem hann óskar leiðsagnar forsetans varðandi ábyrgð ráðherra, þar á meðal Ásmundar Einars Daðasonar, um að framfylgja réttindum barna samkvæmt landslögum, svo Jón Þór geti „sinnt eftirlitsskyldu sinni“ gagnvart því að framkvæmdarvaldið framfylgi lögbundnum réttindum barna.

Tilefnið er eineltistilfelli sex ára drengs sem beittur er grófu ofbeldi í skólanum og DV fjallaði um á laugardag.

Jón Þór segist einnig hafa haft samband við formann Velferðarnefndar Alþingis vegna málsins, en það er kollegi Jóns í Pírötum, Halldóra Mogensen:

„Ég hef haft samband við formann Velferðarnefndar Alþingis sem er ábyrg fyrir því að hafa eftirlit með Ásmundi ef hann vanrækir sínar skyldur. Svo hafði ég aftur samband rétt í þessu við Forseta Íslands til að fá svar fyrir því hver er á endanum ábyrgur fyrir réttundum barna (t.d. að verða ekki fyrir einelti og ofbeldi).“

Eftir að ákveðið var að skipta velferðarráðuneytinu upp í tvö ráðuneyti, fékk Ásmundur Einar, sem er félagsmálaráðherra, einnig titilinn barnamálaráðherra, en breytingarnar taka gildi 1. janúar næstkomandi.

Jón Þór sagði í gær að hann hefði sent bréfið til Guðna fyrir 12 dögum, en hafi enn ekki fengið svar. Því hafi hann sent honum skilaboð á Facebook í gærkvöldi. Þá sagði hann einnig að hann hefði sent bréf til Ásmundar Einars, um hans ábyrgð, sem og til forsætisráðherra, Katrínar Jakobsdóttur.

Færsla Jóns Þórs 

„Ef Ásmundi Einari barnaverndarráðherra er alvara um að vernda börn (hann er ábyrgur fyrir barnavernd í landinu) þá sýnir hann frumkvæði.

Ég hef haft samband við formann Velferðarnefndar Alþingis sem er ábyrg fyrir því að hafa eftirlit með Ásmundi ef hann vanrækir sínar skyldur.

Svo hafði ég aftur samband rétt í þessu við Forseta Íslands til að fá svar fyrir því hver er á endanum ábyrgur fyrir réttundum barna (t.d. að verða ekki fyrir einelti og ofbeldi).

Ég sendi embætti forseta bréfið að neðan fyrir 12 dögum og hef ekki fengið svör. Svo ég lét GuðniTh Jóhannesson vita með facebook skilaboðum í kvöld:

„Kæri Guðni Thorlacius Jóhannesson forseti Íslands.

Eins og ég hef rætt við forsetaritara þinn þá sendi ég sem Alþingismaður þennan póst til að óska leiðsagnar þinnar sem forseta Íslands varðandi ábyrgð mismunandi ráðherra, samkvæmt forsetaúrskurði, á að framfylgja réttindum barna samkvæmt landslögum, svo að ég geti sem Alþingismaður sinnt stjórnarskrárbundinni eftirlitsskyldu minni gagnvart því að framkvæmdarvaldið framfylgi lögbundnum réttindum barna.

Þar sem ég er sem Alþingismaður eiðsvarinn að halda stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

Þar sem ég hef samkvæmt stjórnarskrá eftirlitsskyldu gagnvart framkvæmdarvaldinu.

Þar sem framkvæmdarvaldið ber ábyrgð á því að framfylgja lögbundnum réttindum barna.

Þar sem forseti Íslands felur með forsetaúrskurði ákveðnum ráðherrum ábyrgð á málefnum um réttindi barna eins og þau eru bundin í landslög.

Þar sem lög um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins skylda m.a. þingmenn og ráðherra að: “Það sem barni er fyrir bestu skal ávallt hafa forgang þegar félagsmálastofnanir á vegum hins opinbera eða einkaaðila, dómstólar, stjórnvöld eða löggjafarstofnanir gera ráðstafanir sem varða börn.”

Þar sem ég hef sem ‘Talsmaður barna’, fyrir Umboðsmann barna, UNICEF og Barnaheill, lofað að hafa réttindi barna eins og þau birtast í barnasáttmála SÞ að leiðarljósi í starfi mínu sem þingmaður, þ.m.t. við eftirlit með því að framkvæmdarvaldið framfylgi lögbundnum réttindum barna.

Þar sem ég sem Alþingismaður hef ekki fengið skýr svör um hvaða ráðherrar ber ábyrgð á að uppfylla hvaða þætti réttinda eins árs barns sem fæddist og hefur síðan búið hér á landi en nýtur ekki sömu réttinda og önnur börn, og enn eru réttindi barnsins vanrækt af framkvæmdarvaldinu.

Þar sem ég er ófær um að sinna stjórnarskrábundinni skyldu minni vegna skorts á upplýsingum frá framkvæmdarvaldinu til að ég geti sinnt eftirlitsskyldu minni sem Alþingmaður með framkvæmdarvaldinu.

Óska ég sem Alþingismaður leiðsagnar þinnar sem forseta Íslands varðandi ábyrgð ráðherra á að framfylgja réttindum barna samkvæmt landslögum. Hvaða þættir réttinda barna í landslögum fall undir hvaða málefnasvið og hvaða ráðherra samkvæmt úrskurði forseta Íslands?

Með þökkum og ósk um skýr og skjót svör,
Jón Þór Ólafsson, Alþingismaður og Talsmaður barna fyrir þingflokk Pírata.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 5 dögum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega