fbpx
Mánudagur 23.mars 2026
Eyjan

Kolbrún vill heimila dánaraðstoð: „Ómannúðlegt er að horfa upp á dauðvona einstakling þjást“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 1. október 2018 09:07

Samsett mynd DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kolbrún Bergþórsdóttir fjallar um dánaraðstoð í leiðara Fréttablaðsins í dag. Hún segir málið viðkvæmt, en um þau þurfi þó að ræða:

„Svo að segja hver einstaklingur verður einhvern tíma á lífsleiðinni vitni að því að einhver honum nákominn veikist svo alvarlega að öllum er ljóst að ekkert bíður hans nema dauðinn. Sjálfur sér sjúklingurinn ekki lengur tilgang með lífi sínu, enda hefur það ekki lengur upp á neitt annað að bjóða en kvöl. Hann vill ekki lifa í því ástandi sem hann er í og er reiðubúinn að kveðja þetta líf. Til þess þarf hann aðstoð. Þá aðstoð ætti að veita honum en ekki synja honum um hana.“

Kolbrún minnist á þingsályktunartillögu um dánaraðstoð sem lögð verður fyrir Alþingi í þriðja sinn:

„Þingmennirnir, sem leggja fram þessa þingsályktunartillögu, eru varkárir því þeir segja hana ekki fela í sér afstöðu til þess hvort breyta eigi lögum hérlendis. Tilgangur þeirra með henni er að treysta grundvöll umræðu um viðkvæmt mál, sem er gott. Það má þó líka spyrja af hverju þeir gangi ekki einfaldlega alla leið og taki afstöðu með því að lögum sé breytt á þann veg að dánaraðstoð sé heimiluð.“

Flutningsmenn tillögunnar eru Bryndís Haraldsdóttir,(D) Hanna Katrín Friðriksson, (C) Jón Steindór Valdimarsson,(C) Kolbeinn Óttarsson Proppé,(V) Silja Dögg Gunnarsdóttir,(B)
Björn Leví Gunnarsson,(P) og Guðjón S. Brjánsson.(S).

Rétturinn til að kveðja

Kolbrún segir það hæpið að svipta einstakling þeim rétti að ráða yfir líkama sínum þegar þjáningin tekur völdin:

„Vissulega er það viðurkennt í samtíma okkar að einstaklingur eigi að ráða yfir líkama sínum. Það er hins vegar verulega hæpið, jafnvel alrangt, að halda því fram að einstaklingur ráði yfir líkama sínum þegar hann er sviptur þeim rétti þegar veikindi herja á og þjáningin tekur völdin. Þá er einstaklingnum ætlað að tóra þar til líkaminn gefur sig algjörlega. Einstaklingur sem umfram allt vill lifa og deyja með reisn hlýtur að hafa rétt á því að segja: Nú finnst mér nóg komið. Ég vil kveðja þetta líf. Hér á landi er starfandi félagið Lífsvirðing en eitt af markmiðum þess er að til verði löggjöf um dánaraðstoð. Þar er sérstaklega tekið fram að dánaraðstoð með skýrum skilyrðum teljist til mannréttinda. Það er ástæða til að taka rösklega undir þau orð.“

Þjóðin er hlynnt líknardauða

Kolbrún vonast til að löggjafinn heimili dánaraðstoð og vísar í skoðanakönnun máli sínu til stuðnings:

„Fyrir nokkrum árum lét Siðmennt gera skoðanakönnun þar sem þátttakendur voru meðal annars spurðir hvort þeir væru hlynntir eða andvígir því að einstaklingur gæti fengið aðstoð við að binda enda á líf sitt ef hann væri haldinn ólæknandi sjúkdómi. Niðurstaðan var sú að 75 prósent aðspurðra voru mjög eða frekar hlynnt því. Samkvæmt þessu virðist sem fólk eigi afar auðvelt með að setja sig í spor einstaklings sem er dauðvona og þjáist og finnst að þar eigi dánaraðstoð að vera möguleiki.

Vonandi fer að líða að því að menn treysti sér til að breyta löggjöf þannig að þar verði dánaraðstoð heimiluð. Þannig er sjálfsagður réttur einstaklings yfir líkama sínum tryggður. Málefnið er vissulega viðkvæmt og margir eru líklegir til að setja sig upp á móti því og tína til alls kyns rök. Því verður þó ekki á móti mælt að ómannúðlegt er að horfa upp á dauðvona einstakling þjást, manneskju sem þráir ekkert heitar en að fá að kveðja lífið með reisn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Stjórnvöld ættu að hafa alvarlegar áhyggjur

Þorsteinn Pálsson skrifar: Stjórnvöld ættu að hafa alvarlegar áhyggjur
Eyjan
Fyrir 4 dögum

„Við munum vinda ofan af þessu bakslagi“

„Við munum vinda ofan af þessu bakslagi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: ESB ske es spé

Jón Gnarr skrifar: ESB ske es spé
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslubandalagið óttast góðan samning

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslubandalagið óttast góðan samning
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkur áfram óstjórntækur – enn vandræðagangur – aðrir flokkar með öfluga lista

Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkur áfram óstjórntækur – enn vandræðagangur – aðrir flokkar með öfluga lista
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Kommóða formóður minnar úr Flatey

Nína Richter skrifar: Kommóða formóður minnar úr Flatey