fbpx
Föstudagur 14.nóvember 2025
Eyjan

Styrmir: „Óskastaða fyrir Sjálfstæðisflokkinn að þrífast á sundurlyndi vinstri manna“

Trausti Salvar Kristjánsson
Fimmtudaginn 4. janúar 2018 08:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Styrmir Gunnarsson, fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins, segir í pistli á heimasíðu sinni að samstarf Sjálfstæðisflokksins við VG muni hafa þau áhrif að Sjálfstæðisflokkurinn færist nær miðju,  „þangað sem hann sjálfviljugur hefur ekki viljað leita.” Hann segir það þó geta eflt flokkinn, án þess að skýra það nánar.

Styrmir hefur verið talsmaður þess að færa Sjálfstæðisflokkinn frá þeirri  frjálshyggjustefnu sem flokkurinn tók undir forystu Davíðs Oddsonar, ekki síst eftir efnahagshrunið. Í bók sinni uppreisnarmenn frjálshyggjunnar-Byltingin sem aldrei varð, rekur Styrmir sögu Eimreiðarhópsins svokallaða sem öðrum fremur bar ábyrgð á þeirri frjálshyggjustefnu sem flokkurinn tók upp að fullum krafti með Davíð Oddson í farabroddi og fram að ársbyrjun 2009, þegar sú stefna féll með bankahruninu. Styrmir telur í bókinni að uppgjör innan Sjálfstæðisflokksins varðandi hrunið hafi enn ekki farið fram og vill að flokkurinn endurhugsi og endurnýji stefnu sína í takt við breytta tíma.

 

Í pistli sínum nefnir Styrmir að bilið milli VG og Samfylkingar sé að breikka:

 „Fyrir nokkrum misserum var erfitt að sjá hvers vegna fólk í þessum tveimur flokkum gekk ekki til samstarfs í einum flokki. Nú bendir allt til þess að tónninn í samskiptum þessara tveggja flokka fari síharðnandi. Það er að sjálfsögðu óskastaða fyrir Sjálfstæðisflokkinn – að þrífast á sundurlyndi vinstri manna.“

 

Hvort Styrmir vill að Sjálfstæðisflokkurinn fylli að einhverju leyti það hugmyndafræðilega tómarúm sem hann telur vera milli VG og Samfylkingar skal ósagt látið, en hugmyndir Styrmis um að Sjálfstæðisflokkurinn færi sig nær miðju á hinum pólitíska ás eiga líklega ekki upp á pallborðið hjá forystu flokksins, nema það skili þeim 30-35 prósenta fylgi að nýju, sem verður að teljast ólíklegt með átta flokka á þingi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Falleinkunn fyrir Guðrúnu – afturhaldið situr á þingi undir merkjum Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Falleinkunn fyrir Guðrúnu – afturhaldið situr á þingi undir merkjum Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Dagur B. Eggertsson: Vextir á framkvæmdalánunum fjórfaldir hér á landi – látið eins og ekkert sé hægt að gera

Dagur B. Eggertsson: Vextir á framkvæmdalánunum fjórfaldir hér á landi – látið eins og ekkert sé hægt að gera
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Okkur fækkar og okkur fjölgar

Sigmundur Ernir skrifar: Okkur fækkar og okkur fjölgar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Hjólað í snjókomu

Óttar Guðmundsson skrifar: Hjólað í snjókomu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Að staðsetja Sjálfstæðisflokkinn

Björn Jón skrifar: Að staðsetja Sjálfstæðisflokkinn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn