fbpx
Miðvikudagur 12.nóvember 2025
Eyjan

Vatnajökulsþjóðgarður hafi gildi fyrir allt mannkyn

Trausti Salvar Kristjánsson
Sunnudaginn 28. janúar 2018 19:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vatnajökulsþjóðgarður og hluti gosbeltisins verða tilnefnd á heimsminjaskrá UNESCO en Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, undirrituðu í dag tilnefninguna fyrir hönd íslenska ríkisins. Umsóknin verður afhent heimsminjaskrifstofu UNESCO í París miðvikudaginn 31. janúar 2018.

Í tilnefningunni er áhersla lögð á rekbeltið, heita reitinn undir landinu og eldstöðvakerfi í gosbeltunum ásamt samspili elds og íss sem einstakt er talið á heimsvísu. Á heimsminjaskrá UNESCO eru staðir sem teljast hafa gildi ekki einvörðungu fyrir viðkomandi land heldur fyrir allt mannkyn.

Mikil ásókn er frá ríkjum heims að fá staði á heimsminjaskránna og eru sett ströng skilyrði af hálfu heimsminjanefndar áður en samþykki er veitt. Vonast er til að ákvörðun af hálfu heimsminjanefndar UNESCO liggi fyrir um mitt ár 2019. Ísland á þegar tvo staði á heimsminjaskránni, Þingvelli (2004) og Surtsey (2008).

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra sagði: „Í dag rekum við smiðshöggið á mikla undirbúningsvinnu sem miðar að því að koma Vatnajökulsþjóðgarði á heimsminjaskrá UNESCO. Ég er verulega ánægð með þá vinnu sem hefur átt sér stað og ég er bjartsýn á að þjóðgarðurinn bætist við heimsminjaskrána árið 2019. Það eru mörg tækifæri fólgin í því að efla þjóðgarðinn með þessum hætti, ekki síst fyrir ferðaþjónustuna og byggðirnar í nágrenni garðsins.“

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra sagði: „Friðlýst svæði eru mörg hver segull fyrir ferðamenn á sama tíma og þau tryggja vernd náttúrunnar. Tilnefning Vatnajökulsþjóðgarðs er lóð á þessa vogarskál og afar ánægjulegt skref. Rannsóknir hérlendis sýna að þjóðgarðar skila okkur raunverulegum efnahagslegum ávinningi bæði fyrir Ísland í heild og í heimabyggð. Náttúruverndin er óumdeilanlega ein grunnundirstaða ferðaþjónustunnar. Í þessu samhengi má nefna að stofnun miðhálendisþjóðgarðs er næsta stóra verkefnið okkar.“

Formlegur undirbúningur vegna tilnefningarinnar hefur staðið yfir frá árinu 2016 þegar sérstakri verkefnastjórn var falið að halda utan um og stýra vinnu við tilnefninguna í samræmi við leiðbeiningareglur UNESCO. Verkefnið var unnið í samvinnu við Vatnajökulsþjóðgarð og samráð haft við sveitarstjórnir á viðkomandi svæðum. Vinir Vatnajökuls styrktu gerð og undirbúning tilnefningarinnar.
Undirritunin fór fram við Hoffellsjökul í dag, en auk ráðherranna tveggja voru viðstödd fulltrúar sveitarfélaga, Vatnajökulsþjóðgarðs, og höfunda texta, ásamt verkefnisstjórn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Sonja var ógleymanleg – í ævilöngu sambandi við Onassis

Reynir Traustason: Sonja var ógleymanleg – í ævilöngu sambandi við Onassis
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Guðrún vill minnka allt

Orðið á götunni: Guðrún vill minnka allt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Svona gerir maður ekki

Orðið á götunni: Svona gerir maður ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum