Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, hefur brugðist við viðtali Péturs Gunnlaugssonar við Hall Hallsson, fjölmiðlamann, á útvarpi Sögu í fyrradag. Í þættinum ræddi Pétur við Hall vegna greinar sem Hallur reit í Morgunblaðið um Tommy Robinson, líkt og Stundin greindi frá.
Umræðan beindist síðan að „góða“ fólkinu og meintum vilja þess til að hér á landi ríkti aðeins ein ríkisskoðun sem væri þeim þóknanleg. Hallur líkti skoðanafrelsinu hér á landi við Dýrabæ George Orwell, þar sem Egill Helgason fjölmiðlamaður átti að vera í hlutverki Napóleons, að stýra landanum úr höfuðstöðvum RÚV.
Þá tók Pétur Gunnlaugsson, dagskrárgerðarmaður á útvarpi Sögu, upp á því að viðra getgátur sínar um hversu langt „góða“ fólkið myndi ganga í viðleitni sinni til pólitískrar rétthugsunar. Gekk hann býsna langt í þeim vangaveltum:
„Vill það til dæmis láta drepa þá sem hefur aðrar skoðanir? Og ef það verður gert og það er kannski stutt í það eftir þetta. Þá eigi hreinlega bara að útrýma þeim, skjóta þá sem hafa vondar skoðanir, eru vondir menn. Og þegar að slíkt gerist að þá eigi ekki að lögsækja þá sem væru að drepa þá og ekki að greina frá því heldur, svo þeir yrðu ekki að píslarvættum,“
Tók Hallur undir orð Péturs.
Logi Einarsson, sem gengst við því að vera flokkaður með „góða“ fólkinu, fullvissaði hinsvegar þá kumpána Pétur og Hall, að hann hygðist ekki láta beita þá neinu ofbeldi:
„Ég geri mér grein fyrir að Hallur Halls og Pétur Gunnlaugs flokka mig líklega með góða fólkinu. Ég átta mig líka á því að það er notað til háðungar.
Ég viðurkenni að þetta er býsna útsmogið og ágætlega heppnaður áróður til að gera fólk sem vill m.a. kærleiksríkt fjölmenningarsamfélag, tortryggilegt.
Ég get hins vegar fullvissað Hall og Pétur um það að ég mun ekki leggja til að þeim eða öðrum sé gert mein, en berjast áfram fyrir minni sannfæringu, óháð þessu eða öðrum uppnefnum.“