fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Kolbrún um Guðmund Inga: „Ráðherranum virðist ætlað að vera upp á punt í þessari ríkisstjórn“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 9. júlí 2018 09:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kolbrún Bergþórsdóttir

Kolbrún Bergþórsdóttir lætur ríkisstjórnina heyra það í leiðara Fréttablaðsins í dag vegna uppkaupa breska auðkýfingsins James Ratcliffe á Grímsstöðum á Fjöllum og stórum landssvæðum fyrir austan. Leiðarinn ber nafnið „Aumingjaskapur“ og segir Kolbrún stjórnvöld úti á þekju þegar kemur að þessu máli:

„Þjóðinni er fyrir löngu orðið ljóst að ekki er fullkomlega hægt að treysta á að stjórnvöld haldi vöku sinni í mikilvægum málum. Stundum er einfaldlega eins og þau séu úti á þekju. Þá þarf að vekja þau til lífsins og það getur kostað átak. Þetta sýnir sig í mörgu, en ekki síst þegar kemur að því að slá skjaldborg um náttúru landsins. Þá slær jafnvel þögn á málgefnustu stjórnmálamenn sem kjósa að vera stikkfrí.
Á dögunum tók Björn Halldórsson, bóndi á Akri í Vopnafirði, að sér að ávíta stjórnvöld. Þar vann hann þarft verk. Björn benti á að erlendur auðmaður hefur keypt upp heilu jarðirnar hér á landi án þess að brugðist væri við. Björn sagði það vera aumingjaskap dauðans að ekki skyldi tryggt að verðmætt land og landsvæði væru í eigu þjóðarinnar. Björn bóndi er þarna á sömu slóðum og hinn skeleggi Ögmundur Jónasson sem fyrir tæpum tveimur árum sagði það „órækan vitnisburð um vesaldóm íslenskra stjórnvalda“ að hafa heimilað sölu Grímsstaða á Fjöllum til þessa sama auðmanns, sem er víst stöðugt að færa út kvíarnar hér á landi,“

segir Kolbrún.

Hún tekur Vinstri græn sérstaklega fyrir, flokkinn sem gefi sig út fyrir að vera umhyggjusaman gagnvart náttúru landsins og segir umhverfisráðherra VG aðeins vera „upp á punt“:

„Það getur ekki verið óskastaða að auðmenn eignist hér stór landsvæði. Samt er það látið óátalið. Þegar kemur að varðveislu landsvæða og sjálfsagðri náttúruvernd er andvaraleysi ráðamanna landsins æpandi. Það hefði átt að vera akkur í því að fá í ríkisstjórn Vinstri græn, flokk sem kennir sig við umhyggju gagnvart náttúru landsins og flaggar náttúruverndarsjónarmiðum óspart á landsfundum. Flokkurinn virðist hins vegar hafa afar takmarkaðan áhuga á að beita sér í þágu íslenskrar náttúru í ríkisstjórnarsamstarfi með tveimur enn áhugalausari samstarfsflokkum.
Vinstri græn virtust vera á réttri leið í upphafi ríkisstjórnarsamstarfsins þegar sóttur var í stól umhverfisráðherra Guðmundur Ingi Guðbrandsson, þekktur umhverfisverndarsinni. Innan ríkisstjórnarinnar er samt eins og þess sé alls ekki óskað að hann taki starf sitt alvarlega heldur verði til friðs. Áhugafólk um pólitík bíður spennt eftir því hvort umhverfisráðherra taki hag landsins, og þar með þjóðarinnar, fram yfir friðsælt samstarf við Sjálfstæðisflokkinn. Ráðherranum virðist ætlað að vera upp á punt í þessari ríkisstjórn. Vonandi mun hann ekki sætta sig við það hlutskipti.“

Kolbrún vill að horft sé til framtíðar:

„Aftur skal vitnað í Björn Halldórsson bónda sem í viðtali furðaði sig á því að ekki skuli horft fram í tímann. Verði ekkert gert til að koma í veg fyrir að erlendir auðmenn eignist hér stór landsvæði mun kynslóðinni sem nú er að vaxa úr grasi og þeim kynslóðum sem á eftir koma bregða verulega í brún þegar þeim verður ljós sú staðreynd að skammsýnir stjórnmálamenn sátu aðgerðarlausir og áhugalausir hjá meðan erlendir auðkýfingar hrifsuðu til sín dýrmæt landsvæði.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Ísland á heima í ESB

Thomas Möller skrifar: Ísland á heima í ESB
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Stálin mættust stinn í gær – „Niðurstaðan af hvoru tveggja er að borgin er stjórnlaus“

Stálin mættust stinn í gær – „Niðurstaðan af hvoru tveggja er að borgin er stjórnlaus“