fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Saka Viðreisn um „dylgjur og tvískinnung“

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 3. apríl 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Staksteinar Morgunblaðsins saka Viðreisn um dylgjur og tvískinnung í dag, þar sem viðbrögð flokksins í vantraustsmálinu eru borin saman við meðferð málsins um lækkun kosningaaldurs. Er vísað í gagnrýni Bergþórs Ólasonar þingmanns Miðflokksins, sem sakaði Viðreisn um tækifærismennsku í pontu Alþingis, er hann sagði flokksmenn Viðreisnar hafa lýst vantrausti á dómsmálaráðherra þar sem hún hlustaði ekki á ráð sérfræðinga sinna. Síðan hafi þeir ekki sjálfir hlustað á ráð sérfræðinga úr sama ráðuneyti  í meðferð málsins um lækkun kosningaaldurs.

 

Yfirskrift Staksteina er „Dylgjur og tvískinnungur“:

„Skömmu fyrir páska sýndu þingmenn Viðreisnar af sér óvenjulegan tvískinnung í meðferð málsins um kosningarétt 16 og 17 ára barna sem ekki fékkst afgreitt. Ákveðnir þingmenn annarra flokka, meðal annars Bergþór Ólason, Miðflokki, fóru ágætlega yfir þetta og bentu á hvernig þingmenn Viðreisnar höfðu stutt tillögu um vantraust á ráðherra, meðal annars með því að vísa í álit embættismanna, en vildu í þessu máli ekkert með álit sömu embættismanna gera. Bergþór benti á að tækifærismennska einkenndi meðferð kosningaréttarmálsins og sagði svo: „Það eru ekki nema nokkrir dagar síðan menn stóðu hér útþandir af réttlætiskennd og gerðu kröfu um að dómsmálaráðherra segði af sér, lýstu yfir vantrausti á hana, vegna þess að hún hafði ekki hlustað á sérfræðinga í dómsmálaráðuneytinu. Og hvað gerist núna? Það koma sérfræðingar úr þessu sama dómsmálaráðuneyti, vara við því hvernig haldið er á þessu máli, og þá bara allt í einu skiptir það ekki nokkru máli.

Þá þykir höfundi Staksteina ótækt að Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar, hafi ekki beðist afsökunar á orðum sínum í umræðuþætti:

„En það var ekki bara að þingmenn Viðreisnar gæfu allt í einu ekkert fyrir álit embættismanna dómsmálaráðuneytisins. Í umræðuþætti dylgjaði Jón Steindór Valdimarsson um það að varnaðarorð í umsögn dómsmálaráðuneytisins vegna kosningaréttarmálsins mætti rekja til þess að refsa ætti flutningsmanni frumvarpsins. Síðan er liðin meira en vika og enn hefur enginn vandlætarinn fundið að þessu, hvað þá að þingmaðurinn hafi beðist afsökunar.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki