fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
Eyjan

Sólveig Anna bar sigur úr býtum

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 7. mars 2018 08:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sólveig Anna Jónsdóttir, nýr formaður Eflingar

Niðurstaða kosninga úr stjórnarkjöri Eflingar-stéttarfélags er nú ljós, en úrslit lágu fyrir á fyrsta tímanum í nótt. Sólveig Anna Jónsdóttir verður næsti formaður Eflingar-stéttarfélags og mun hún taka við af Sigurði Bessasyni, fráfarandi formanni, á aðalfundi félagsins þann 26. apríl nk.

Listi Sólveigar Önnu, B, fékk 2099 atkvæði en A listi stjórnar og trúnaðarráðs fékk 519 atkvæði. Sólveig Anna vann því yfirburðarsigur með um 80% atkvæða gegn 20%.

 

„Eins og við höfum verið að segja, þá er láglaunafólki og verkafólki einfaldlega svo viðbjóðslega misboðið; því misbýður svo ástandið í þessu íslenska arðránssamfélagi að þegar það stígur fram fólk og fer að lýsa með einföldum og skýrum hætti því sem er að eiga sér stað í íslensku samfélagi, þá tekur fólk undir það. Það sem við höfum gert er að lýsa aðstæðunum sem við erum látin búa við, og það er það sem hefur skilað okkur þessum ótrúlega árangri – að við vorum ekkert að bulla, við bara töluðum hreint og beint, frá hjartanu, og lýstum nákvæmlega þeim aðstæðum sem íslenskt verkafólk er látið búa við.“

sagði Sólveig Anna við RÚV, aðspurð um ástæðuna fyrir sigrinum.

Þeir sem voru með Sólveigu Önnu á lista og taka sæti í stjórn Eflingar eru Magdalena Kwiatkowska hjá Café Paris, Aðalgeir Björnsson, tækjastjóri hjá Eimskip, Anna Marta Marjankowska hjá Náttúru þrif, Daníel Örn Arnarsson hjá Kerfi fyrirtækjaþjónustu, Guðmundur Jónatan Baldursson, bílstjóri hjá Snæland Grímsson, Jamie Mcquilkin hjá Resource International ehf. og Kolbrún Valvesdóttir, starfsmaður búsetuþjónustu Reykjavíkurborgar.

 

Úrslit kosninganna voru þannig:

Á kjörskrá voru 16.578 félagsmenn og af þeim greiddu 2.618 atkvæði.

B listi Sólveigar Önnu Jónsdóttur fékk  2099 atkvæði.

A listi stjórnar og trúnaðarráðs fékk 519 atkvæði.

Auðir seðlar voru 6 og ógildir voru 4.

Tveir listar voru í framboði í stjórnarkjöri Eflingar-stéttarfélags. Átta einstaklingar skipa hvorn lista, formaður, gjaldkeri og sex meðstjórnendur, en fullskipuð stjórn er fimmtán manna með þeim stjórnarmönnum sem kosnir voru á síðasta ári. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 30 mínútum
Sólveig Anna bar sigur úr býtum

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt