fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Trump yngri segist ekki hafa sagt föður sínum frá Rússafundinum

Ari Brynjólfsson
Miðvikudaginn 12. júlí 2017 09:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump forseti Bandaríkjanna. Mynd/EPA

Donald Trump yngri, sonur Donalds Trump Bandaríkjaforseta, segist ekki hafa sagt föður sínum frá fundi sínum með rússneska lögmanninum  Nataliu Veselnitskayu síðasta sumar þegar kosningabaráttan milli Trump og Hillary Clinton stóð sem hæst. Sagði Trump yngri í viðtali á sjónvarpsstöðinni Fox News að fundurinn í Trump turninum í New York 9.júní 2016 hefði ekki verið merkilegur en í tölvupóstssamskipum hans við aðila í Rússlandi kom fram að útvega ætti kosningabaráttu Trump leynilegar upplýsingar frá rússneskum yfirvöldum sem kæmu sér illa fyrir Clinton.

Sjá frétt: New York Times segist hafa tölvupósta frá Rússlandi til Trump

Donald Trump yngri. Mynd/Twitter

Athygli vakti að Trump yngri tók umræddum upplýsingum fagnandi með orðunum „I love it“, eða „ég elska þetta“ og virtist það ekki koma honum á óvart að fá slíkt skeyti frá Rússlandi né að í því hafi staðið að upplýsingarnar, sem ekki er vitað hverjar eiga að hafa verið, væru hluti af stuðningi rússneskra yfirvalda við kosningabaráttu núverandi Bandaríkjaforseta.

Í kjölfar fréttaflutnings New York Times í gær staðfesti Trump yngri að fundurinn með Veselnitskayu, Paul Manafort þáverandi kosningastjóra Trump og Jared Kushner tengdasyni forsetans og núverandi ráðgjafa í Hvíta húsinu, hafi átt sér stað. Segir Trump yngri hins vegar að hann hefði verið „tímasóun“:

Þetta voru bara 20 mínútur sem var sóað, sem er synd,

sagði hann við Fox News, þvertekur hann fyrir að hafa rætt fundinn við föður sinn, tilgangur fundarins hafi einungis verið að afla upplýsinga um andstæðing. Demókratar á Bandaríkjaþingi hyggjast kalla Trump yngri fyrir leyniþjónustunefnd þingsins og fara ofan í saumana á málinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki