Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, og Benedikt Jóhannesson fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Viðreisnar gefa erlendum fjölmiðlum hvor sína mynd af framtíð íslensku krónunnar.
Sagði Benedikt í viðtali við Financial Times það óforsvaranlegt fyrir Ísland að viðhalda sínum eigin fljótandi gjaldmiðli og að Ísland muni skoða þann möguleika að festa íslensku krónuna við annan gjaldmiðil, annað hvort evru eða breska pund:
Við myndum vilja hafa stefnu sem kemur jafnvægi á gjaldmiðilinn. Það er alls ekki mjög gott þegar gjaldmiðill flöktir um 10% á þeim tveimur mánuðum síðan við tókum við,
sagði Benedikt við FT og bætti við að fá krónuna í jafnvægi sé næsta stóra verkefni Íslendinga. Tenging við Kanadadollar eða norsku krónuna séu aftur á móti „afleit hugmynd“.
Fasttenging ekki á döfinni
Bjarni segir hins vegar að krónan komi til með að verða gjaldmiðill Íslands um ófyrirsjáanlega framtíð og að fasttenging við evru, pund eða Bandaríkjadal sé ekki á döfinni. Sagði Bjani í viðtali við Bloomberg að peningastefnunefnd væri að störfum og að grundvöllur þeirrar vinnu væri að krónan yrði framtíðargjaldmiðill ÍslandsÞ
Það eru ekki til neinar töfralausnir sem draga úr sveiflum og halda jafnt í stöðugleika,
sagði Bjarni við Bloomberg og bætti við að krónan hefði gegnt lykilhlutverki í endurreisn Íslands í kjölfar fjármálahrunsins 2008.