fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
Eyjan

Útgönguspá í Hollandi: Wilders mistókst að verða stærstur

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 15. mars 2017 20:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mark Rutte forsætisráðherra fyrir miðju. Nær er svo Geert Wilders með sinn sérstæða hármakka. Mynd/EPA

Útgönguspá í hollensku þingkosningunum sem birt var strax eftir að kjörstaðir lokuðu klukkan 20 að íslenskum tíma benda til að Frjálslyndi flokkur Mark Rutte forsætisráðherra verði áfram sá stærsti í Hollandi. Spáin bendir til að flokkur hans Þjóðarflokkurinn fyrir frelsi og lýðræði (VVD) muni fá 21 prósent atkvæða og 31 þingsæti. Flokkur Rutte er þannig sigurvegari hollensku kosninganna. Það er þó varnarsigur því VVD virðist tapa 10 þingsætum frá síðustu kosningum 2012.

Frelsisflokki (PVV) Geerts Wilder sem er talinn yst til hægri á væng hollenskra stjórnmála tókst ekki að slá út flokk forsætisráðherra og verða stærri en hann. Frelsisflokkurinn fær samkvæmt þessu 13 prósent atkvæða og 19 þingsæti. Tveir aðrir flokkar virðast ná svipuðu fylgi og Frelsisflokkurinn.

Þannig er ljóst að Geert Wilders verður ekki sigurverari hollensku þingkosninganna eins og kannanir bentu jafnvel til að gæti orðið.

Greinilegt er að spennan kringum kosningarnar hefur leitt til stóraukinnar kjörsóknar. Nýjustu tölur sýna að 73 kosningabærra höfðu greitt atkvæði klukkustund og stundarfjórðungi áður en kjörstaðir lokuðu í kvöld klukkan 21 að hollenskum tíma (Kl. 20:00 á Íslandi). Við síðustu þingkosningnar í Hollandi 2012 var kjörsóknin á þeim tímapunkti 65 prósent. Fyrsta útgönguspá í kvöld sýndi síðan að kjörsóknin hefði orðið 81 prósent. Árið 2012 endaði hún í 74,6 prósentum.

Í höfuðborginni Haag var tilkynnt að kjörstaðir yrðu hafðir opnir aðeins fram yfir 21 svo að fólk sem þegar var mætt og stóð í biðröðum gæti greitt atkvæði. Sums staðar í borginni urðu kjörstaðir uppiskroppa með kjörseðla svo fólk varð að fara annað.

Hér fyrir neðan er færsla af Twitter-síðu Geerts Wilder með myndum af því þegar hann greiddi atkvæði í morgun:

Wilders hefur sjálfur lýst því yfir að hvernig sem kosningarnar fari þá sé hann sigurvegarinn því honum hafi tekist að stela senunni og koma af stað hreyfingu sem ekki verði stöðvuð.

Andinn er sloppinn úr lampanum og verður ekki settur í hann aftur.

Nú er svo að sjá hvort talning atkvæða sýni hvort útgönguspár standist.

Hér má fylgjast með beinni útsendingu frá kosningakvöldinu í Hollandi (á hollensku):

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Pipar\TBWA kaupir hlut í norsk-breska fyrirtækinu Aida Social

Pipar\TBWA kaupir hlut í norsk-breska fyrirtækinu Aida Social
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Stjórnarandstaðan pirruð yfir að fá að halda málþófinu áfram fram á nótt – „Hvaða leikrit er í gangi?“

Stjórnarandstaðan pirruð yfir að fá að halda málþófinu áfram fram á nótt – „Hvaða leikrit er í gangi?“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Hinn gullni tími“ – Trump missir sig í Hvíta húsinu

„Hinn gullni tími“ – Trump missir sig í Hvíta húsinu
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bergþór bergmálar málflutning SFS um ofurlaun í fiskvinnslu – „Þetta eru bara orðin hálauna- og, að miklu leyti, kvennastörf“

Bergþór bergmálar málflutning SFS um ofurlaun í fiskvinnslu – „Þetta eru bara orðin hálauna- og, að miklu leyti, kvennastörf“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kvennaárinu er fagnað – í kvíða

Sigmundur Ernir skrifar: Kvennaárinu er fagnað – í kvíða
Eyjan
Fyrir 1 viku

Diljá Mist Einarsdóttir: Verðum að ávarpa þá tilfinningu þjóðarinnar að ekki sé eðlileg skipting ágóðans af sjávarútvegi

Diljá Mist Einarsdóttir: Verðum að ávarpa þá tilfinningu þjóðarinnar að ekki sé eðlileg skipting ágóðans af sjávarútvegi