fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Kristjón ráðinn aðalritstjóri DV og vefmiðla

Ritstjórn DV
Föstudaginn 1. desember 2017 19:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristjón Kormákur Guðjónsson ritstjóri DV. Mynd: DV/Sigtryggur Ari

Kristjón Kormákur Guðjónsson hefur verið ráðinn aðalritstjóri miðla Frjálsrar fjölmiðlunar, bæði netmiðla og DV.  Kristjón hóf störf hjá Vefpressunni árið 2012. Tveimur árum síðar var hann ráðinn ritstjóri Pressunar, sem rak þá vefina DV.is, Pressan.is, Eyjan.is og Bleikt.is.

Kristjón var annar tveggja ritstjóra DV árið 2016, en tók aftur við netmiðlunum í maí sl.

„Ég þakka það traust sem mér er sýnt af nýjum eigendum DV, Frjálsrar fjölmiðlunar með þessari ráðningu. Þetta er mikil áskorun en forréttindi mín er að hafa við hlið mér metnaðarfullt fagfólk í öllum stöðum sem er reiðubúið til að leggja allt í sölurnar,“ segir Kristjón.

Lestur á blað DV og DV.is hefur verið á mikilli siglingu og mörg tækifæri fyrir hendi til að styrkja okkur á öllum vígstöðvum. Það eru spennandi tímar framundan og ég hlakka til að taka þátt í að gera gott blað betra með því góða og hæfileikaríka fólki sem starfar hjá fyrirtækinu.

Þá hefur Björn Þórir Sigurðsson verið ráðinn til Frjálsrar fjölmiðlunar. Hann mun sinna þróunarvinnu fyrir félagið, bæði hvað varðar netmiðla og blað. Björn Þórir hefur mikla reynslu. Hann hefur m.a. gegnt starfi framleiðanda hjá RVK stúdíós, fyrirtæki Baltasars Kormáks, verið framleiðandi hjá Latabæ, stýrt sölu- og markaðssviði Árvakurs, verið sjónvarpsstjóri Skjás 1 og dagskrárstjóri á Stöð 2, svo fátt eitt sé nefnt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins