fbpx
Sunnudagur 17.ágúst 2025
Eyjan

Meirihluti hæstaréttardómara eru einnig í öðrum launuðum störfum

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 3. janúar 2017 13:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

markussigurbjornssonSex af tíu hæstaréttardómurum sinna launuðu starfi annarstaðar en í dómnum, algengast er að um sé að ræða kennarastarf eða starf í öðrum dómum. Um þetta má lesa í Hagsmunaskráningu hæstaréttardómara. Til dæmis er Markús Sigurbjörnsson, sem hefur verið forseti hæstaréttar frá 1. janúar 2012, einnig með launað starf sem prófdómari við lagadeild Háskóla Íslands og með launað starf sem prófdómari við prófraun til öflunar réttinda sem héraðsdómslögmaður.

Hörð gagnrýni á hæstarétt oft komið fram

Þá á meirihluti dómaranna eignir sem eru til annars en til eigin nota og þrír þeirra eiga eignarhlut í hlutafélögum. En þess ber að geta að Markús Sigurbjörnsson á ekki lengur neinn eignarhlut í hlutafélagi en hann átti um tíma tugi milljóna hluti í Glitni. En hann hefur fengið mesta gagnrýni á sig undanfarnar vikur og fjallaði Eyjan.is nýlega um grein Jóns Steinars Gunnlaugssonar, fyrrverandi hæstaréttardómara, en hann bar Markús þungum sökum. Árið 2014 hafði Jón Steinar þegar komið með ábendingar um að Markús ráði því sem hann vill ráða í hæstarétti, í útgefinni bók sem nefnist Í krafti sannfæringar – saga lögmanns og dómara.

Aðild hæstaréttardómara að félögum virðist aðallega vera bundin við bókmennta- og sagnfræðifélög og síðan eru nokkrir tengdir fótboltafélögum. Knattspyrnufélögin Fram, Valur og Breiðablik eru nefnd til sögunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“
Eyjan
Fyrir 2 vikum

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Guðrún krefst þess að Kristrún segi eitthvað – „Við þurfum að tala skýrt“

Guðrún krefst þess að Kristrún segi eitthvað – „Við þurfum að tala skýrt“