fbpx
Miðvikudagur 18.febrúar 2026
Eyjan

Heilleg timburhúsabyggð

Egill Helgason
Þriðjudaginn 24. janúar 2017 22:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þessi ljósmynd mun vera tekin árið 1930, væntanlega úr nýbyggðu Hótel Borg. Það er merkilegt að sjá hversu tilburhusabyggðin hefur verið heilleg í kvosinni og upp í Grjótaþorpi á þessum tíma. Þarna standa enn timburhús við Austurvöll, meðal annars gamla apótekið með styttum ofan á, þarna er nú Landsímahúsið með afar ljótri viðbyggingu sem verið er að breyta í hótel. Í sjálfu sér er það ekki vitlaust, því gamla Landsímahúsið kallast á sinn hátt við Hótel Borg, er eiginlega systurbygging.

Að baki er svo stór garður, þar sem eitt sinn var Víkurkirkjugarður, og svo taka við timburhúsin, Uppsalir með turni, húsið þar við hliðina, Aðalstræti 16,  sem stóð fram undir síðustu aldamót og hýsti undir það síðasta útvarpsstöð sem kallaðist Aðalstöðin. Allt var þetta rifið og á endanum var holað þarna niður fremur mislukkaðri byggð sem á að vera í gömlum stíl, en er í raun aldrei nema hálfkák, skrítin blanda af eftirlíkingum og nútímabyggingum.

Uppi á Landakotshæðinni sendur enn gamla kirkjan með turni, en steinkirkjan sem var vígð 1929 er risin. Gamla kirkjan var síðan flutt aðeins ofar á hæðina og breytt í íþróttahús sem gekk undir heitinu ÍR-húsið. Löngu síðar var það flutt – í algjöru tilgangsleysi – alla leið upp í Árbæ, en ekkert kom í staðinn nema bílastæði á horni Hofsvallagötu og Túngötu.

Gamli Landakotsspítalinn stendur þarna ennþá, en byggðin er farin að taka á sig mynd fyrir sunnan Landakotstúnið. Húsin sem þar glittir í held ég að standi við Sólvallagötu fremur en Hávallagötu. Í Garðastrætinu handan Túngötu er ekki annað að sjá en byggingu sem lengi hefur hýst rússneska sendiráðið.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson: Orkuöflun komin af stað eftir sjö ára bið – forgangur almennings til orku lögfestur

Jóhann Páll Jóhannsson: Orkuöflun komin af stað eftir sjö ára bið – forgangur almennings til orku lögfestur
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Nína Richter skrifar: AI spegill, herm þú mér, með áhuga á sjálfum sér

Nína Richter skrifar: AI spegill, herm þú mér, með áhuga á sjálfum sér
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Nýir vendir sópa best – en hvernig sópa gamlir vendir?

Orðið á götunni: Nýir vendir sópa best – en hvernig sópa gamlir vendir?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón Þórsson, stjórnarformaður Sólheima: Þörf fyrir Sólheima í hverjum landshluta – sjálfbært samfélag kærleiksriddara

Sigurjón Þórsson, stjórnarformaður Sólheima: Þörf fyrir Sólheima í hverjum landshluta – sjálfbært samfélag kærleiksriddara
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyþór Eðvarðsson skrifar: Þegar Bretar brutu blað með peningaleiðinni – Ný sýn og kröftug leið til að ná árangri í loftslagsmálum

Eyþór Eðvarðsson skrifar: Þegar Bretar brutu blað með peningaleiðinni – Ný sýn og kröftug leið til að ná árangri í loftslagsmálum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Ó mín flaskan fríða

Jón Gnarr skrifar: Ó mín flaskan fríða