Heilbrigðismálin eru sett í algjöran forgang,“ sagði Þorsteinn Víglundsson um stjórnarsáttmálann sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar mun kynna í Gerðarsafni í Kópavogi í dag klukkan 14:30. Hann sagði einnig frá því í viðtali á Bylgjunni í hádegisfréttum að hann teldi að minni flokkarnir hafi náð mörgum af sínum málefnum fram í þessum stjórnarsáttmála. Heimildir Eyjunnar.is herma að mjög mikil ánægja hafi verið á fundi Viðreisnar í gær þarsem stjórnarsáttmálinn var samþykktur og menn haft það á orði að Viðreisn hafi fengið góðan samning.
Samkvæmt heimildum Eyjunnar.is, frá þeim sem sóttu fundi stofnana stjórnarflokkanna í gærkvöldi, eru meðal annars eftirfarandi mál í stjórnarsáttmálanum sem verður kynntur klukkan 14:30 í dag: Endurskoðun peningastefnunnar á að ljúka fyrir lok fyrsta starfsárs. Námsstyrkjakerfi verður tekið upp að norrænni fyrirmynd. Máltækniverkefni verði haldið áfram í samstarfi við fræðasamfélagið og atvinnulífið með það fyrir augum að snjalltæki skilji talaða Íslensku. Samkeppnissjóðir á sviði menningar og nýsköpunar verða styrktir verulega.
Jafnlaunavottun verður skylda fyrir 25 manna fyrirtæki og yfir. Sjávarútvegskerfið verður endurskoðað með það fyrir augum að auka afgjald frá sjávarútveginum, sem þó verði tengt afkomu greinarinnar. Horft verður til markaðstengdra langtímasamninga um nýtingu sjávarauðlindar. Endurskoðun búvörusamnings fyrir 2019. Ráðstöfun innflutningskvóta endurskoðuð og forsendur fyrir frávikum frá samkeppnislögum fyrir mjólkuriðnaðinn greindar og gerðar viðeigandi breytingar.
Börkur Gunnarsson