„Fyrirtæki sem hefur grætt tugi milljarða ákveður vegna græðgi sem er kallað hagræðing á Excel-skjali að hætta starfsemi í litlu bæjarsamfélagi, það er ekki að græða nóg og ástæðan er að krónan er vond við þau þessa stundina.“
Svona hefst pistill Bubba Morthens tónlistarmanns í Fréttablaðinu í dag. Gerir hann ákvörðun HB Granda um að hætta bolfiskvinnslu á Akranesi að umtalsefni. Segir hann fyrirtækið hvísla í græðgisbríma „Ó, ég elska þig svo heitt“ þegar gengi krónunnar er lágt:
En um leið og krónan er komin á fætur styrkum fótum og vill ekki þýðast þá, þá kalla þeir til blaðamannafundar og ofbeldið er opinberað í örfáum orðum: Við munum hætta allri starfsemi hér og konurnar verða látnar fara. En á meðan sitja máfurinn og múkkinn sveittir við að reikna út arðinn á þessu ári. Enn og aftur detta nokkrir milljarðar í vasana.
Bubbi segir að samfélagsleg ábyrgð hljóti að vera nýyrði í eyrum þeirra sem stjórna. Allt fólkið sem hefur unnið af trúmennsku og látið yfir sig ganga langa stranga daga, ljósa sem dökka, það sé skotið niður líkt og tívolíendur, bara vegna þess að milljarðamæringarnir eru ekki að græða nóg. Bæjarfélagið ákveði svo af veikum mætti að reyna að þóknast herranum og leitar leiða til að gleðja hann:
Þau stóðu tvö föl í svölum sjávarvindi, kona og nýi bæjarstjórinn, og stundu: Við erum í sjokki.
„Fékkstu martröð, elskan?“
Hann segir þetta gamla sögu. Saga sem gerðist í gær og muni gerast aftur á morgun:
„Örfá fyrirtæki gína yfir gapandi fiskum í sjónum og á þurru landi og skrapa völlinn með Excel-skjölunum sínum. Við viljum græða, þið hjálpið okkur til þess, syngja þeir á árshátíðinni þar sem þangskógurinn bylgjast til og frá og fiskar á þurru landi fá eina kvöldstund að deila sama rými og gróðaguðirnir. Eitt augnablik gleyma þau að þau eru fiskar fastir í netmöskvum manna sem hafa eitt áhugamál. Gróði, ó, þú sæti gróði, ó, þú dásamlegi gróði, umla þeir á milli máltíða.“
Bubbi segir svo að lokum:
Svo vakna þeir upp hrópandi nei! Og konan spyr: Fékkstu martröð, elskan?
Og það er stunið upp: Já.
Hvað var það, ljúfurinn?
Mig dreymdi samfélagslega ábyrgð.