Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) fékk nú á föstudag sendar upplýsingar um fjármálaumsvif dómara við Hæstarétt Íslands á árunum fyrir fall íslenska bankakerfisins árið 2008. Upplýsingarnar eru hluti af málsskjölum sem Ólafur Ólafsson og þrír fyrrverandi stjórnendur Kaupþings banka, þeir Sigurður Einarsson, Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson, sendu MDE vegna umfjöllunar dómstólsins um Al Thani málið svokallaða. Telja þeir að brotið hafi verið á réttindum þeirra, bæði við rannsókn málsins og meðferð þess fyrir dómstólum.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá fjórmenningunum. Kæra Ólafs og fyrrverandi stjórnenda Kaupþings til MDE snýr meðal annars að vanhæfi dómara sem dæmdu málið í Hæstarétti í febrúar 2015. Í bréfinu til Mannréttindadómstólsins er bent á nýjar upplýsingar um hagsmunatengsl dómara sem komu fram í umfjöllun íslenskra fjölmiðla í desember síðastliðnum.
Í kærunni kemur fram að Hæstiréttur Íslands hafi sýnt dómgreindarleysi við að meta hugsanlega hagsmunaárekstra í dómsmálum á hendur fyrrverandi stjórnendum þriggja stærstu viðskiptabankanna; Kaupþings, Glitnis og Landsbankans. Í öllum þessum málum hefði meint markaðsmisnotkun verið til umfjöllunar og umboðssvik sakborninga og þau því tengd innbyrðis.
Höfðu persónulegra fjárhagslegra hagsmuna að gæta
„Nýleg fjölmiðlaumfjöllun á Íslandi hefur leitt í ljós að sumir dómarar sem sátu í Hæstarétti í þessum málum höfðu persónulegra fjárhagslegra hagsmuna að gæta, í sumum tilvikum umtalsverðra hagsmuna, vegna bankanna í aðdraganda falls þeirra árið 2008,“ segir í kærunni til Mannréttindadómstólsins, sem tekur nú málið til áframhaldandi meðferðar. Hæstiréttur hafi brugðist við þessum uppljóstrunum með því að tilkynna að tilteknar upplýsingar um hagsmunatengsl dómara við réttinn yrðu birtar opinberlega á heimasíðu hans frá janúar 2017.
Bent er á það í bréfi lögmanns kærenda fyrir Mannréttindadómstólnum að beðið sé eftir frekari upplýsingum sem varði hæfi dómara meðal annars frá opinberum aðilum. Bæði Hæstarétti og nefnd um dómarastörf hefur verið sent erindi þar sem óskað er ítarlegra upplýsinga um hagsmunatengsl dómara, bæði þeirra sem komu að meðferð málsins fyrir héraðsdómi og Hæstarétti Íslands.
Kæra var send til Mannréttindadómstólsins í ágúst 2015, þar sem því var haldið fram var að brotið hefði verið á réttindum sakborninga í fjölmörgum liðum. Í kjölfarið ákvað MDE að taka til frekari skoðunar fjögur atriði úr kærunni og óskaði eftir skriflegum svörum frá íslenska ríkinu varðandi vanhæfi dómara, aðgang sakborninga að gögnum, það að Al Thani var ekki boðaður í þinghaldið og að brotið hefði verið á sakborningum með því að hlera símtöl þeirra við lögmenn sína.
Málið er nú til áframhaldandi meðferðar hjá Mannréttindadómstóli Evrópu.