Benedikt Jóhannesson formaður Viðreisnar sækist eftir því að verða fjármálaráðherra ef Sjálfstæðisflokknum, Viðreisn og Bjartri framtíð tekst að mynda ríkisstjórn. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Viðræður flokkanna þriggja héldu áfram í gær og lauk fundi á sjötta tímanum, unnið er að því að ljúka stjórnarmynduninni fyrir vikulok.
Líkt og Eyjan hefur greint frá hafa margir þingmenn Sjálfstæðisflokksins efasemdir um samstarfið við Viðreisn og Bjarta framtíð, en telja þeir flestir að málið sé komið of langt til að stöðva það, en snúið verði að ná samstöðu um stór mál í stjórnarsáttmála.
Enn er unnið að skiptingu ráðuneyta en gengið er út frá því að Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins verði forsætisráðherra. Heimildir Eyjunnar benda til að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins verði, auk Bjarna, Kristján Þór Júlíusson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Ólöf Nordal og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.
Heimildir Fréttablaðsins herma að Þorsteinn Víglundsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmenn Viðreisnar, sækist eftir ráðherraembættum af fullum þunga en ekki megi útiloka Hönnu Katrínu Friðriksson. Björt framtíð fær, samkvæmt heimildum Vísis, tvo ráðherrastóla, og er búist við því að Óttarr Proppé og Björt Ólafsdóttir verði ráðherrar flokksins, og að þingflokkurinn sé áhugasamur um að flokkurinn taki að sér atvinnuvegaráðuneytið og umhverfis- og auðlindaráðuneytið.