fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
Eyjan

Kiljan aftur í kvöld

Egill Helgason
Miðvikudaginn 3. febrúar 2016 08:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kiljan fer aftur á loftið á vormisseri í kvöld. Bækur eru ekki hættar að koma út þótt jólin séu búin.

Við fáum til okkar Halldóru Thoroddsen með Tvöfalt gler, stutta skáldsögu sem fékk Fjöruverðlaunin um daginn. Hún fjallar um gamla konu sem býr við Lindargötu og verður ástfangin.

Við birtum viðtal við hinn stórkostlega Kim Leine, höfund Spámannanna í Botnleysufirði, skáldsögu sem fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2013, gerist í Kaupmannahöfn og á Grænlandi undir lok 18. aldar.

Við fjöllum um hinar merku Napólísögur Elenu Ferrante sem fara sigurför um heiminn. Þetta eru fjórar bækur sem segja frá vinkonum sem alast upp í fátækrahverfi í Napólí á árunum eftir stríð, hin fyrsta, Framúrskarandi vinkona, er komin út á íslensku, en von er á bók númer tvö.

Í Bókum & stöðum förum við að Möðruvöllum í Hörgárdal þar sem koma meðal annars við sögu Skáld-Rósa, Bjarni Thorarensen og Bólu-Hjálmar.

Hildur Eir Bolladóttir, prestur á Akureyri, velur svo uppáhaldsbækur sínar. Hún er meðal annars hrifin af Guðbergi, þó ekki öllum pistlunum hans.

 

Screen Shot 2016-02-03 at 08.58.18

 

Hér er svo Facebook síða Kiljunnar þar sem birtast reglulegar uppfærslur um efni þáttarins, brot úr honum og ýmislegt fleira.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 7 klukkutímum
Kiljan aftur í kvöld

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Stjórnvöld ættu að hafa alvarlegar áhyggjur

Þorsteinn Pálsson skrifar: Stjórnvöld ættu að hafa alvarlegar áhyggjur
Eyjan
Fyrir 4 dögum

„Við munum vinda ofan af þessu bakslagi“

„Við munum vinda ofan af þessu bakslagi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: ESB ske es spé

Jón Gnarr skrifar: ESB ske es spé
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslubandalagið óttast góðan samning

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslubandalagið óttast góðan samning
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkur áfram óstjórntækur – enn vandræðagangur – aðrir flokkar með öfluga lista

Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkur áfram óstjórntækur – enn vandræðagangur – aðrir flokkar með öfluga lista
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Kommóða formóður minnar úr Flatey

Nína Richter skrifar: Kommóða formóður minnar úr Flatey