fbpx
Fimmtudagur 13.nóvember 2025
Eyjan

David Bowie 1947-2016

Egill Helgason
Mánudaginn 11. janúar 2016 07:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

David Bowie var einstakur tónlistarmaður, textahöfundur og listamaður á sviði. Fáir túlkuðu tíðaranda áranna milli 1970 og 1980 eins og hann – og mótuðu um leið viðhorfin, listina og tískuna. Bowie fór alltaf sína leið.

Stuttu fyrir andlátið gaf hann út plötuna Blackstar. Hún mun hljóma öðruvísi, öðlast aðra merkingu, nú þegar fréttist að krabbamein sem hann hefur glímt við hefur dregið hann til dauða á aðeins átján mánuðum. Bowie gerði flest með stæl – og hann kveður með stæl.

Ég sá Bowie á tónleikum í Marseille 1978. Lagalistann á tónleikunum er að finna á netinu – þetta er máski magnaðasta tímabil Bowies – lögin eru af plötum sem höfðu gríðarlega þýðingu fyrir mína kynslóð. Það fer eiginlega hrollur um mig þegar ég hugsa að þarna hafi ég verið sem unglingur – góður hrollur.

Takk fyrir tónlistina – og snilldina. Nú sest Kári við píanóið og spilar fyrir mig Space Oddity.

 

Screen Shot 2016-01-11 at 07.35.57

 

https://www.youtube.com/watch?v=jBuwC4VJi50

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Dagur B. Eggertsson: Þurfum að bregðast við gagnrýni Mannréttindadómstólsins

Dagur B. Eggertsson: Þurfum að bregðast við gagnrýni Mannréttindadómstólsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Okkur fækkar og okkur fjölgar

Sigmundur Ernir skrifar: Okkur fækkar og okkur fjölgar