fbpx
Föstudagur 14.nóvember 2025
Eyjan

Fallegar moskuteikningarnar, fjármögnun og byggingatími

Egill Helgason
Fimmtudaginn 26. nóvember 2015 22:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manni sýnist að teikningar að mosku í Reykjavík séu ljómandi fallegar og smekklegar. Húsið ætti að falla vel að umhverfinu og þarna er meira að segja unnið með hið þjóðlega byggingarefni, torf.

Það getur tekið langan tíma að koma upp tilbeiðsluhúsum og manni heyrist að Salman Tamimi, formaður Félags múslima, sé ekki alveg viss um hvernig fjármögnunin á að vera. Hún má alls ekki vera í gegnum vafasama trúbræður í Saudi-Arabíu eða Persaflóaríkjum. Það er dálítið bjartsýnt að 200 manns í söfnuðinum gefi milljón hver, eins og Salman talaði um í sjónvarpinu í kvöld. En hvað veit maður?

Þolinmæðin getur þó reynst ágæt í þessu efni. Tími guðdómsins er líka langur, þar ríkja ekki nein skammtímasjónarmið. Við þurfum ef til vill ekki ekki að nefna hversu langan tíma það tók að byggja Péturskirkjuna í Róm, nú eða Sagrada Familia Gaudis í Barcelona. Hún hefur verið í byggingu síðan 1882 en nú er stefnt á að klára hana 2026.

Landakotskirkja, tilbeiðsluhús kaþólskra á Íslandi, hefur í raun aldrei verið kláruð. Það vantar toppinn á turninum. Hallgrímskirkja var í byggingu í næstum fjóra áratugi. Á löngu tímabili stóð kirkjubyggingin í stað, það var hrært í eina og eina steinsteypufötu þegar sóknarnefndin hafði efni á. En kirkjan reis með mikilli þrautseigju og þolinmæði og er nú bæjarprýði – eins og moskan í Sogamýri verður væntanlega með tíð og tíma.

 

fr_20151126_027494

Moskubyggingin er teiknuð af arkitektunum Gunnlaugi Stefáni Pálssyni og Piu Bickmann.

Við getum svo borið hana saman við teikninguna að kirkju rétttrúaðra í Reykjavík. Verður að segjast eins og er að samanburðurinn er kirkjunni mjög í óhag. Hún er frekar púkaleg, svona eins og stöðluð teikning sem kemur í pósti einhvers staðar að utan. Maður gæti jafnvel talað um kits í þessu sambandi.

 

images-18

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Dagur B. Eggertsson: Vextir á framkvæmdalánunum fjórfaldir hér á landi – látið eins og ekkert sé hægt að gera

Dagur B. Eggertsson: Vextir á framkvæmdalánunum fjórfaldir hér á landi – látið eins og ekkert sé hægt að gera
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Peppræðan uppfull af taugatitringi, hroka og ráðaleysi

Orðið á götunni: Peppræðan uppfull af taugatitringi, hroka og ráðaleysi
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Hjólað í snjókomu

Óttar Guðmundsson skrifar: Hjólað í snjókomu
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Dagur B. Eggertsson: Fórnarlömb málþófsins fjölmörg – auka álagið á þingið í vetur

Dagur B. Eggertsson: Fórnarlömb málþófsins fjölmörg – auka álagið á þingið í vetur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Þáttaröðin „Evrópa brennur“

Thomas Möller skrifar: Þáttaröðin „Evrópa brennur“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Sonja var ógleymanleg – í ævilöngu sambandi við Onassis

Reynir Traustason: Sonja var ógleymanleg – í ævilöngu sambandi við Onassis