fbpx
Föstudagur 14.nóvember 2025
Eyjan

Þriðja heimsstyrjöldin er ekki hafin þótt það standi á Facebook

Egill Helgason
Laugardaginn 14. nóvember 2015 11:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er merkilegt að fylgjast með hvernig atburðir gerast í beinni útsendingu á samfélagsmiðlum, maður hefur aldrei upplifað þetta sterkar en í hryðjuverkaárásunum í París í gær. Út um heiminn berast skilaboð frá manni sem er fastur inni á tónleikastað í miðri árás. Allt í einu gýs upp umræða um árás í Les Halles hverfinu – en það reyndist ekki rétt.

En að sumu leyti er þetta ógnvekjandi líka. Allir eru að reyna að hafa skoðanir á atburðum sem þeir vita eiginlega ekkert um, upplýsingarnar eru algjörlega ónógar og inn í umræðurnar stígur alls konar fólk sem er jafnvel í misjöfnu ástandi og smátt og smátt fer manni að líða eins og að í heiminum ríki algjör ringulreið.

Maður fer að spyrja hvað samfélagsmiðlarnir séu að gera við sálarlíf okkar og sýn á veröldina?

Þannig var ég að lesa í gær færslur eftir fólk sem staðhæfði fullum fetum að þriðja heimsstyrjöldin sé hafin. Hjá sumum upplifði maður einkennilega kátínu yfir að nú væri allt komið til andskotans. Aðrir heimtuðu einhverjar tafarlausar aðgerðir, hverjar sem þær eiga að vera. Böndin voru jafnvel farin að berast að hælisleitendum á Reykjanesi. Þetta var innan um aðra sem voru að pósta  misjafnlega óstaðfestum fréttum og svo myndum af franska fánanum og táknmyndum franska lýðveldisins.

Og eftir þennan hrærigraut er maður einhvern veginn engu nær, jú, reyndar finnur maður meiri nálægð við atburðina en í eina tíð, en upplýsingarnar sem maður hefur og forsendurnar til að meta þetta allt eru einhvern veginn lélegri en ef maður hefði bara fengið góða fréttaskýringu eða lesið vandaða grein. Það er ekki auðvelt að vera stjórnmálamaður í heimi þar sem upplýsingaflaumurinn er svo stjórnlaus og óskaplegur – maður er hálfpartinn farinn að biðja fyrir þeim sem þurfa að taka ákvarðanir út frá atburðum gærkvöldsins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Falleinkunn fyrir Guðrúnu – afturhaldið situr á þingi undir merkjum Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Falleinkunn fyrir Guðrúnu – afturhaldið situr á þingi undir merkjum Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Dagur B. Eggertsson: Vextir á framkvæmdalánunum fjórfaldir hér á landi – látið eins og ekkert sé hægt að gera

Dagur B. Eggertsson: Vextir á framkvæmdalánunum fjórfaldir hér á landi – látið eins og ekkert sé hægt að gera
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Okkur fækkar og okkur fjölgar

Sigmundur Ernir skrifar: Okkur fækkar og okkur fjölgar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Hjólað í snjókomu

Óttar Guðmundsson skrifar: Hjólað í snjókomu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Að staðsetja Sjálfstæðisflokkinn

Björn Jón skrifar: Að staðsetja Sjálfstæðisflokkinn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn